Fasteignaleitin
Opið hús:07. des. kl 13:15-14:00
Skráð 4. des. 2025
Deila eign
Deila

Grettisgata 96

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
131.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
94.800.000 kr.
Fermetraverð
720.913 kr./m2
Fasteignamat
89.150.000 kr.
Brunabótamat
67.400.000 kr.
ÞB
Þórhallur Biering Guðjónsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1953
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2010416
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi að því best er vitað
Raflagnir
Í lagi að því best er vitað
Frárennslislagnir
Skólplagnir í sameign, gangi og þvottahúsi voru endurnýjaðar. (Skv. söluyfirliti fyrri eiganda).
Gluggar / Gler
Gler og gluggar í stofu, forstofuherbergi og í risi voru endurnýjaðir.  Aðrir yfirfarnir og málaðir árið 2022.
Þak
Skipt um járn og pappa á þaki ásamt þakrennur endurnýjaðar árið 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Draga á í nýtt rafmagn og setja upp nýja rafmagnstöflu í sameign í risi. Seljendur greiða fyrir það. 
 
Betri Stofan Fasteignasala kynnir fallega, bjarta og vel skipulagða 131,5fm, 5 herbergja íbúð á 1. hæð með svalir til suðurs ásamt útleiguherbergi í risi á við Grettisgötu 96, 105 Reykjavík. 4 íbúðir eru í stigaganginum, ein á hverjum palli. Eignin skiptist í forstofu, 3 rúmgóð svefnherbergi (Möguleiki á að bæta því 4 við með þvi að flytja eldhús í aðra stofuna), baðherbergi, gestasalerni, sérgeymsla í kjallara ásamt risherbergi með aðgengi að sameiginlegu eldhúsi og salerni sem getur nýst sem útleigueining. Húsið hefur fengið gott viðhald á síðustu árum. Árið 2021-2022 var húsið múrviðgert ásamt því að járn á þaki var endurnýjað og gluggar endurnýjaðir eftir þörfum. Nýlegur myndavéladyrasími. Eign sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ VIDEÓ AF EIGNINNI

Fasteignmat fyrir árið 2026 skv. HMS er kr. 99.500.000kr. 

Framkvæmdir utanhúss árið 2022

- Gler og gluggar í stofu og forstofuherbergi voru endurnýjaðir. 
- Gler og gluggar í eldhúsi, borðstofu, svefnherbergjum I og II voru yfirfarnir og málaðir að utan. 
- Gluggi í geymslu í risi endurnýjaður (velux).
- Þak yfirfarið skipt um þakjárn og pappa. 
- Húsið múrviðgert að utan. 
- Útihurðir yfirfarnar og málaðar. 
- Þakrennur endurnýjaðar.
2019
- Skólplagnir í sameign, gangi og þvottahúsi voru endurnýjaðar. (Skv. söluyfirliti fyrri eiganda).

Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur með skóla á öllum stigum í nágrenninu ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu sem miðbær Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á síðustu misserin á austari hluta miðbæjarins. Þar ber hæst að nefna Hlemm mathöll og Hlemmtorg sem er langt komið. Þá er stutt gönguferð í Sundhöllina, útivistarparadísina á Klambratúni og menningarsetrið Kjarvalstaði þar sem hægt er að njóta fjölbreyttra listasýninga ásamt því að setjast niður á Klambrar Bistrø sem býður upp á matseðil sem er innblásinn af skandinavískri matarhefð, fjölbreyttu úrvali af kruðeríi og hágæða kaffi. 

Nánari lýsing:  
Anddyri: Viðarparket á gólfi. Gengið í eitt herbergjana úr anddyri, gestasalerni og inn á gang.
Svefnherbergi I: Innaf anddyri. Rúmgott með fataskáp. Möguleiki á að nýta sem útleiguherbergi með aðgengi að salerni. 
Gestasalerni: Nýlegur vaskur og blöndunartæki, skápar m/speglahurð, og salerni.
Eldhús: Rúmgott eldhús með fallegri og vel viðhaldinni upprunalegri eldhúsinnréttingu og nýlegri borðplötu. Efri og neðri skápar með innbyggðum nýlegum Husqvarna blástursofni, spanhelluborði og innbyggðri uppþvottavél frá Siemens. Flísar á milli skápa nýlega endurnýjaðar á smekklegan hátt. Möguleiki er að færa eldhús inn í aðra stofuna og hefur það verið framkvæmt í hluta af íbúðum í húsalengjunni.
Hol/gangur: Tengir saman flest rými íbúðar. 
Stofa: Rúmgóð, falleg og björt stofa. Samliggjandi og opin við borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð og björt borðstofa. Opin og samliggjandi við stofu. Útgengt úr borðstofu út á svalir til suðurs. Möguleiki á að færa eldhús í borðstofu. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Nýlegt baðkar og blöndunartæki. Baðinnrétting með neðri skáp, nýlegum vaski ásamt speglaskáp fyrir ofan vask.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi. 
Svefnherbergi III: Rúmgott með fataskáp.
Geymsla / Herbergi í Risi: Herbergi sem notað er í útleigu í dag. Með aðgang að klósetti og litlu eldhúsi. er 7,5fm, skráð 15,5fm skv. fasteignaskráningu.

Sérgeymsla: Lítil geymsla er á jarðhæð (undir stiga)  
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð.  
 
Útgengt er í fallegan og gróinn tyrfðan garð til suðurs frá jarðhæð hússins.

Falleg eign í vel viðhöldnu húsi í miðborginni með auka herbergi í risi sem getur ma. nýst til útleigu. Frábær staðsetning í miðborginni þar sem mikil uppbygging hefur og á sér stað undanfarin misseri. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við fjölbreytta flóru kaffi- og veitingahúsa, leikhúsa, kvikmyndahús og tónlistarhúsa ásamt fjölbreyttir flóru verslunar og þjónustu býður upp á einstaka möguleika og lífsgæði. Þá er stutt í falleg útivistarsvæði og skóla á öllum stigum.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Hreiðar Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@betristofan.is - Telmu Rut Frímannsdóttur í síma 772-555, telma@betristofan.is - Þórhalli Biering í síma 896-8232, thorhallur@betristofan.is


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/07/202374.900.000 kr.84.000.000 kr.131.5 m2638.783 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
92.3 m2
Fjölbýlishús
312
1073 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús
312
1026 þ.kr./m2
94.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
92.2 m2
Fjölbýlishús
312
998 þ.kr./m2
92.000.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 212
Bílastæði
Opið hús:07. des. kl 13:00-14:00
Heklureitur - íbúð 212
105 Reykjavík
95.3 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin