LIND Fasteignasala, Andri Freyr Halldórsson lgfs. kynna til sölu: Fallegt og vel skipulagt raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á frábærum og fjölskylduvænum stað í Njarðvík.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 123.5 fm. Eignin skiptist í íbúð 97.9 fm og 25.6 fm bílskúr.
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2027 er 83.400.000 kr.*
Eignin skiptist í:
Forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í opnu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
-Nýlegur pallur með heitum potti og sólskála/gróðurhúsi.
-Nýleg eldhús innrétting.
-Raðhús á einni hæð.
-Rúmgott alrými með mikilli lofthæð.
-Tvö svefnherbergi – rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi.
-Gólfhiti í húsinu.
-Sérþvottahús með innangengt í bílskúr.
-Bílskúr með geymslu og millilofti.
Eignin skiptist í:
Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu í opnu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Flísalagt anddyri með góðu aðgengi að alrými hússins.
Stofa & borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með mikilli lofthæð og innfelldri lýsingu.
-Útgengt er út á baklóð sem snýr í suður – tilvalið fyrir sólríkar stundir utandyra.
Eldhús: Eldhúsið er opið og tengist borðstofu með eyju. Falleg viðarinnrétting með góðu skápaplássi, innbyggðum ofni í vinnuhæð, uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp. Alrýmið myndar heildstætt og notalegt rými.
Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi með sér fataherbergi og útgengi út á baklóð.
Svefnherbergi 2: rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Smekklega innréttað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari með sturtu, upphengdu salerni og snyrtilegri innréttingu.
Þvottahús: Flísalagt með góðum innréttingum. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Lóð: Nýlegur pallur með heitum potti og sólskála/gróðurhúsi.
Bílskúr: 25,6 fm með máluðu gólfi og rafdrifinni hurð ásamt geymslulofti.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.