Fasteignaleitin
Opið hús:07. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 28. ágúst 2026

Laugaborg - Þaksvalir (504)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
141.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
184.900.000 kr.
Fermetraverð
1.306.714 kr./m2
Brunabótamat
87.950.000 kr.
GM
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteignasali
https://miklaborg.isEignalisti
Byggt 2025
5. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2537431
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir: Laugaborg við Kirkjusand er nýtt fjölbýlishús á 3–6 hæðum með skjólgóðum inngarði og sameiginlegum þakgarði sem býður upp á notalegt útsýni og dýrmætar stundir utandyra – í miðbænum sjálfum. Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og skipulagi, allar með gólfhita, vönduðum innréttingum og svölum eða sérafnotafleti. Allur úthringur hússins er með svalalokun sem stenst íslensk skilyrði og þolni stuðla. Alls verða bílastæði fyrir tæplega 1000 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum. Lyftur eru í öllum stigagöngum. Ítarlegar upplýsingar má sjá á https://105midborg.is/ibudir/borgartun-41


Bílakjallari: Stór samfelldur bílakjallari og hafa íbúar möguleika á aðgangi að einu eða fleiri bílastæðum í þessum bílakjallara gegn hóflegugjaldi til að mæta rekstrarkostnaði.

Nýr íbúðakjarni sem samanstendur af 115 íbúðum á 6 hæðum afhendast í 4 áföngum . Íbúðarkjarninn í randbyggðarformi umhverfis innigarð. Húsið er partur af nýju hverfi á Kirkjusandi. Græn svæði umlykja bygginguna ásamt þakgarði.

Sjálfstætt loftræstikerfi í öllum íbúðum. Frábær staðsetning rétt við Laugardalinn mikil áhersla er lögð á vistvænar samgöngur og góða aðstöðu fyrir hjólandi og gangandi í hverfinu.


*Tilbúin til afhendingar við kaupsamning*


Bókaðu skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING:

Íbúð 504 er glæsileg íbúð á 5. hæð með stórum þaksvölum að stærð 48,8 fm og 13,8 fm. Íbúðin skipar, forstofu, hjónasvítu með fataherbergi og sér baðherbergi, tvö auka herbergi, annað baðherbergi, þvottahús og aukaherbergi/sjónvarpshol. Glæsilegt alrými með stórri borðstofu, stofu og eldhúsi með eyju og útgengt út á stórar þaksvalir.
Forstofa: er með með fataskáp sem nær upp í loft.

Hjónasvíta: Stór hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi inn af því.
Svefnherbergi: Tvö auka herbergi, útgengt á svalir úr öðru þeirra.

Aukaherbergi/Sjónvarpshol: opið herbergi sem býður upp á þann möguleika að bæta við fjórða svefnherberginu.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting úr ljósri létthvíttaðri eik með quartz Technistone plötu frá Rein í lit Mystery white á borði, eldhúseyja með sömu plötum á borði og meðfram hliðum eyjunar. Eldhús skilast með vönduðum tækjum frá Siemens, Span helluborði með innbyggðum gufugleypi og bakaraofn með kjöthitamæli og sjálfhreinsibúnaði.
Stofa/alrými: Björt og stór stofa og borðstofa sitt hvorum megin við eldhús í alrýminu, útgengt á stórar þaksvalir.
Baðherbergi: Baðherbergin eru með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger. Borðplata með sömu quartz plötum og í eldhúsi. Sturta með Unidrain gólfrennupakka. Flísar á böðum eru frá Ítalíu, Píemme, seria Journey, litur Otta, stærð 60*120 cm á gólf og veggi, einn veggur með skrautflísum stærð 30*60 cm.

Þvottahús: Innan íbúðar með flísum á gólfum og upphengdum innréttingum.

Geymsla: 13,6 fm

Svalir: 6,8 fm

Þaksvalir: 48,8 fm

Allir fata- skápar/forstofuskápar eru sérsmíðaðir og eru ljós grábrúnir á lit með svart lökkuðum handföngum. Innbyggðar skúffur með ljúflokun.

(Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign)

 

Nánari upplýsingar veita:


Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is


Íris Arna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Smyrilshlíð 15
102 Reykjavík
74,9 m2
Fjölbýlishús
311
1021 þ.kr./m2
76.500.000 kr.
Skoða eignina Skipalón 12
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Skipalón 12
Skipalón 12
220 Hafnarfjörður
131,5 m2
Fjölbýlishús
423
866 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 44 íb. 201
Bílastæði
Suðurgata 44 íb. 201
220 Hafnarfjörður
151,1 m2
Fjölbýlishús
423
1224 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Bílastæði
Opið hús:08. okt. kl 18:00-18:30
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
132,3 m2
Fjölbýlishús
322
1027 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin