Miklaborg kynnir: Verulega fallegt og mikið uppgert 192,6 fm einbýlishús á einni hæð með litlum bílskúr, innst inn í botnlanga.
Fjögur mjög rúmgóð svefnherbergi, stofa, borðstofa, gott baðherbergi, gestasnyrting og þvottahús.
Húsið hefur á síðastliðnum árum verið endurnýjað að mestu leyti. M.a. hefur þak og þakkantur verið endurnýjað, húsið einangrað og klætt að utan með fallegri klæðningu. Gluggar hafa verið endurnýjaðir, skipt hefur verið um eldhús, gólfefni, auk þess sem baðherbergi og gestasnyrting hafa verið endurnýjuð.
Upplýsingar veitir Jason Guðmundsson lögm. og lögg. fasteignasali., jason@miklaborg.is GSM 899 3700
Nánari lýsing:
Stór og góð forstofa með miklu skápaplássi og fallegum flísum á gólfi. Innangengt er í þvottahús úr forstofu og þaðan út í garðinn. Hiti er í gólfi forstofu, þvottahúss og gestasnyrtingar.
Flísalagt gestasalerni er við forstofu. Hjónaherbergið er mjög rúmgott með miklu skápaplássi. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Stofan og borðstofan eru í stóru og opnu rými með parketi á gólfi, fallegt útsýni. Þaðan er útgengt um rennihurð út í afgirtan garð og á palla sem snúa til suðurs. Lagnir fyrir heitan pott hafa verið lagðar út í garð.
Eldhúsið er mjög gott með nýlegri innréttingu opið í stofuna.
Á svefnherbergjagangi er:
Stórt baðherbergi með flísum á gólfi, góðri innréttiningu, fallegu baðkari og ,,Walk in" sturtu sem er flísalögð í hólf og gólf. handklæðaofn og gluggi eru á baðherbergi.
Svefnherbergi 1 - parketi á gólfi og skápur.
Svefnherbergi 2 - parketi á gólfi og skápur.
Svefnherbergi 3 - parketi á gólfi og mikið skápapláss.
Hjónaherbergið er innsti hluti þess sem áður var bílskúr. Bílskúrinn hefur því verið minnkaður og er nú skráður 15 fm.
Húsið er skráð sem timburhús, en er að sögn eiganda með steyprum göflum húsið er klætt með fallegri álklæðingu.
Mjög gott hellulagt plan er fyrir framan húsið og við hlið þess.
Garðurinn snýr í suður og vestur með útsýni niður í Elliðaárdalinn.
Upplýsingar veitir Jason Guðmundsson lögm. og lögg. fasteignasali., jason@miklaborg.is GSM 899 3700
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 01/10/2015 | 44.200.000 kr. | 53.000.000 kr. | 174.7 m2 | 303.377 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
110 | 192,6 | 183 | ||
110 | 187,1 | 123,9 | ||
800 | 176,7 | 109,9 | ||
225 | 208,8 | 169,9 | ||
112 | 384,6 | 192 | ||
800 | 175 | 89,8 |