ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Seljudalur 2, 260 Reykjanesbæ. Um er að ræða
fallegt og vel skipulagt 120 fm enda raðhús á einni hæð, staðsett í
fjölskylduvænu umhverfi nærri Stapaskóla og nýjum leikskóla.Flísalögð forstofa með skáp og geymslu, parketlagt hol og stórt
opið rými þar sem eldhús og stofa tengjast saman. Eldhúsið er með viðarlitaðri innréttingu, góðu skápaplássi og quartz borðplötum, úr stofu er gengið út á afgirta verönd á baklóð.
Í húsinu eru
þrjú svefnherbergi, öll parketlögð og með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni, hvítri innréttingu, baðkari og sturtuklefa.
Rúmgott þvottahús með flísum, innréttingu, skoltvaski og aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara. Gólfhiti er í öllum rýmum, innkeyrsla er hellulögð og lóð grasilögð.
Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 7727930, tölvupóstur halla@allt.is.
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, tölvupóstur elin@allt.is Nánari lýsing eignar:Forstofa: Er flísalögð og hefur klæðaskáp
Hol: Er rúmgott og tengir saman öll rými
Eldhús: Quartz steinn í borðplötum, falleg viðarlituð innrétting með góðu skápaplássi, ofn og helluborði.
Stofa: Stofa og eldhús tengjast saman í stóru opnu rými, hurð er út á verönd á baklóð frá stofu.
Hjónaherbergi: Bjart með góðum klæðaskáp.
Barnaherbergi: Eru tvö með klæðakápum.
Baðherbergi: Falleg hvít innrétting, Flísar á gólfi og kringum baðkar, upphengt salerni, sturtuklefi.
Þvottahús: Er mjög rúmgott, þar eru flísar á gólfi, góð hvít innrétting með með skolvask í borði og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara,
Geymsla er inn af forstofu, flísar á gólfi og skápur*Hiti er í öllum gólfum eignarinnar
*Verönd er á baklóð, afgirt að stærstum hluta.
*Innkeyrsla er hellulögð og lóð er grasilögð
*Fallegt og vel skipulagt raðhús á einni hæð nærri Stapaskóla og nýjum leikskóla.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.