Glæsilegt 235,6fm einbýlishús á einni hæð, við Sóltún 2, 250 Garði.
* Einbýlishús á einni hæð með stórum bílskúr
* Vel hannað, stórt alrými
* Fjögur rúmgóð svefnherbergi
* Verslun, leikskóli og skóli í göngufæri.
* Stór verönd og heitur pottur.
* Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla í bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir:
Edwin Árnason lgf. í síma 893-2121 eða edwin@palssonfasteignasala.is******palssonfasteignasala.is**********verdmat.is*********www.eignavakt.is*****Nánari lýsing íbúðar:Eignin er 235,6 fm, björt og vel skipulögð. Forstofa er með fataskáp og flísalagt gólf. Eldhús er með innréttingu með kirsuberjaspón og flísum á gólfi. Stofa er björt með parketi á gólfi og þaðan er útgengt út á suð-vestur verönd. Svefnherbergin eru rúmgóð og með góðum fataskápum, parket á gólfum. Baðherbergi er með innréttingu með kirsuberjaspón, flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar og sturta með glervegg. Gestasnyrting flísalögð og máluð, hvít innrétting og upphengt salerni. Rúmgott þvottahús með hvítum innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara. Stór afgirt verönd er suðvestan meginn við húsið með 9fm geymslu skúr og heitum potti. Eignin er skráð 235,6 fm, og þar af er bílskúr 53,4 fm.
Forstofa: Rúmgóð forstofa með góðum fataskáp
Alrými: rúmgott og bjart alrými þar sem er eldhús, borðstofa og stofa
Eldhús: eldhús er rúmgott og með innréttingum með kirsuberjaspón og góðu skápaplássi, góðri eldunareyju og opið að stofu.
Borðstofa/stofa: stofan er rúmgóð og björt og útgengi er út á stóra verönd frá stofu.
Baðherbergi: baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með kirsuberjaspón, upphengt salerni, hornbaðkar og sturta með glervegg.
Gestasnyrting: gestasnyrting er flísalögð og máluð og með hvítri innréttingu og upphengdu klósetti.
Svefnherbergi: 1-3: svefniherbergin eru rúmgóð og með góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og með góðu skápaplássi.
Samstætt parket er á alrými og herbergjum, flísar á forstofu og votrýmum. Samstæður kirsuberjaspónn er á innréttingum og hurðum fyrir utan gestasnyrtingu og þvottahús.
Bílskúr: Stór og rúmgóður og með geymslulofti, gólf að hluta til með flísum og að hluta með epoxy, hleðslustöð fyrir rafbíla og bílskúrshurð með hurðaropnara
Stór afgirt verönd er suðvestan meginn við húsið með 9fm geymslu skúr og heitum potti, og garðurinn afgirtur með timburgrindverki að mestu leiti.
Umhverfið: Góð staðsetning, stutt er í fallega náttúru, Grunnskóli, leikskóli og kjörbúð í göngufæri, líkamsrækt og sundlaug í nágrenninu, frítt er fyrir íbúa í Garði í sundlaugina í Garði.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi sjá heimasíðu viðkomandi lánastofnunar..
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 76.880 kr. m.vsk.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.