Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu Hásæti 2B, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Þriggja herbergja íbúð í parhúsi ásamt innbyggðum bílskúr byggðu árið 2003, alls 127,9 fm.
Íbúðin er 101,3 fm. og bílskúrinn er 26,6 fm. Leigulóð hússins er 1007 fm.
Fasteignin er staðsett við búseturéttarkjarna á Sauðárkróki.
Snyrtileg eign.
Að utan er húsið í góðu á standi.
Timbur pallur, hellulögð stétt og stórt malbikað bílaplan er fyrir framan hús.
Lóð er annars malarborin og á bak við húsið er jafnframt pallur úr timbri.
Fasteignin skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, forstofu, þvottahús, geymslu sem hægt væri að nýta sem herbergi og innbyggðan bílskúr.
Parket er á allri íbúðinni fyrir utan forstofu, baðherbergi og þvottahús
Frá Hásæti er komið í forstofu með skápum.
Stofa snýr í suðaustur.
Herbergin eru bæði með skápum.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og sturtu.
Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu og viðarborðplötu.
Frá eldhúsi er komið í dúklagt þvottahús þar sem er vaskaborð og útihurð á pall vestan við húsið.
Við þvottahúsið er svo rúmgóð geymsla og inngangur í bílskúr.
Nánari upplýsingar um eignina og söluyfirlit er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
550 | 151.4 | 61 |