Lind Fasteignasala kynnir : Falleg tveggja til þriggja herbergja 69,3 fm. íbúð við Álfhólsveg 149 í Kópavogi, íbúð merkt 201. Stórar svalir til suðurs. Í íbúðinni er eitt svefnherbergi ásamt geymslu með glugga sem nýtt hefur verið sem barnaherbergi. Sér þvottahús innan íbúðar. Frábær staðsetning þar sem skóli, leikskóli og önnur þjónusta eru í göngufjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is.Lýsing:Forstofa með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Sturta með glerskilrúmi og flísum á veggjum.
Eldhús með hvítri innréttingu og borðkrók. Í eldhúsi er gott skápapláss og flísalagt á milli efri og neðri skápa.
Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð með parketi á gólfi. Í stofu og borðstofu eru stórir og bjartir gluggar til suðurs. Þaðan er útgengt út á svalir til suðurs.
Geymsla er staðsett innan íbúðar en hún er með glugga og hefur einnig verið nýtt sem barnaherbergi eða skrifstofa.
Sér þvottahús er staðsett innan íbúðar. Í þvottahúsi er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Stór og sameiginleg lóð með nægum bílastæðum. Snyrtileg sameign þar sem nýlega var málað og skipt um teppi.
Frábær staðsetning í þessu fjölskylduvæna hverfi. Öll helsta þjónusta er í göngufæri svo sem skóli, leikskóli, matvöruverslanir ofl.
Parket var nýlega endurnýjað á íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir:
Ómar Hvanndal hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 832-3200 / omar@fastlind.is **Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma**
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.