Borg fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi við Ljósheima 20 í Reykjavík. Íbúðin er með góðu útsýni og svölum með svalalokun.Samkvæmt fasteignaskrá er eignin skráð 89,8 fm, þar af er íbúðin 85,7 fm og geymsla 4,1 fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél
Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskáp.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og góðu útsýni. Parket á gólfi og útgengt á svalir með svalalokun.
Eldhús: Hvít innrétting með dökkum borðplötum og flísum á milli efri og neðri skápa. Innbyggður ofn, helluborð og innbyggð uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Bjart herbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Einnig útgengt út á svalir frá hjónaherbergi.
2 barnaherbergi: Parket á gólfi og innbyggður fataskápur.
Baðherbergi: nýlegt með flísalagt gólf og hluta til veggja. Hvít innrétting með handlaug og speglaskáp, upphengt salerni, baðkar og handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél.
Svalir: Svalir með svalalokun og góðu útsýni yfir nágrennið.
Geymsla: staðsett í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: eru sameiginleg í sameign.
Þvottahús: er sameiginlegt í sameign, einnig er tengi fyrir þvottavél innan íbúðar inn á salerni.
Viðhald og endurbætur:Klósett: Stammi og vatnslagnir inn á klósetti fyrir þessa íbúð og baðherbergi tekið í gegn á sama tíma.
Rafhleðsla er fyrir tvo bíla á sameiginlegu bílastæði hússins.
Ljósheimar 20 er vel staðsett eign í vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, verslanir, sund, líkamsrækt, heilsugæslu.Nánari upplýsingara veitir:Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.
s. 868 2222 - victor@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.