Fasteignaleitin
Skráð 1. maí 2024
Deila eign
Deila

Skjólbraut 11

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
144.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
115.000.000 kr.
Fermetraverð
796.951 kr./m2
Fasteignamat
43.900.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Þvottahús
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064965
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
nýbygging
Svalir
verönd
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Sigríður Rut, lgfs. í gsm. 699-4610 og Fasteignasalan TORG kynna: LAUS VIÐ KAUPSAMNNG. Einstaklega fallega,bjarta  og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð í nýbyggingu   í fjórbýlishúsi í grónu hverfi.  Um er að ræða rúmgóðu 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi, góð aðkoma og  tvö sérbílastæði fylgja.  Alls er eignin skráð 144,3 fm og skiptist íbúðin í forstofu,  hjónaherbergi með fataherbergi, tvö svefnherbergi til viðbótar, tvö baðherbergi annað baðherbergið er innaf hjónaherberginu með sturtu,  aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Frá aðalrýminu er útgengt út á góða verönd til suðurs. Eigninni tilheyrir 30 fm. sérafnotaflötur í garði við suðurhlið hússins samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.  Íbúðinni er skilað samkvæmt skilalýsingu.  Einstök staðsetning í grónu hverfi í næsta nágrenni við Sundlaug Kópavogs.  Íbúðin skilast samkvæmt skilalýsingu, HTH innréttingar, eldhústæki frá Bræðrunum Ormsson, skilast með flísalögðu gólfi  í anddyri, baðherbergi,  baðherbergi/þvottaherbergi og geymslu en að öðru leyti skilast íbúðin án gólfefna. Afhending er við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir í gsm.
 699-4610 eða siggarut@fstorg.is 

Nánari lýsing
Gengið er niður vinstri hlið húsins forsteyptur stigi með hita í.

Sérinngangur.
Forstofa: Með fataskáp og flísum á gólfi með skáp.
Svefnherbergi 1: Rúmgott og bjart er innaf stofu með skáp.
Svefnherbergi 2: Rúmgott og bjart með skáp.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott,  með góðu fataherbergi. Innaf hjónaherbergi er sér baðherbergi með flísalagðri sturtu og glerhlið. Innréttingu frá HTH og upphengt salerni. Flísalagt gólf og veggir.
Eldhús/stofa og borðstofa mynda alrými. Útgengt út á suðurpall frá stofu.
Eldhús: Bjart og með fallegri innréttingu frá HTH, spanhelluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur frá Bræðurnir Ormsson 
Baðherbergi/þvottaherbergi: Innrétting frá HTH, upphengd salerni, flísalagt gólf og að hluta veggir. Sturtuþil úr hertu gleri frá Byko. Tengi fyrir þvottavél.
Geymsla:  Er inní íbúðinni.  Flísalagt gólf.

Staðsetning:  Einstök staðsetning í grónu hverfi í vesturbæð Kópavogs þar sem stutt er í sundlaug Kópavogs,   Menntaskólann i Kópavogi og barnaskóla. Tveir leikskólar, Gerðasafn og Salurinn allt í göngufæri.  Skemmtilegar göngu og hjólaleiðir í nágrenninu.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir, löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is 

Skilalýsing: Skjólbraut 11. Nýbygging.
 
Arkitekt : TAG teiknistofa ehf.
Burður: BM Vallá
Lagnir: TAG teiknistofa ehf.
Raflagnahönnun: Akkur ehf.
 
Frágangur á húsinu
Almennt miðast allur fragangur og efnisval við grunnmyndir og sérteikningar TAG teiknistofu.
Almenn lýsing
Um er að ræða fjórbýli á tveimur hæðum. Bygging er úr vottuðum forsteyptum samlokueiningum frá BM Vallá. Undirstöður eru steyptar úr járnbentri steinsteypu sem hvíla á burðarhæðri frostfrírri malarfyllingu eða malarkambi. Botnplata er staðsteypt.
Þak
Burðarvirki þaks eru timbursperrur. Þak er klætt með bárujárni, þar undir er þakpappi og borðaklæðning.
Veggir
Útveggir eru forsteyptir samlokuveggir, uppbyggðir úr 70mm veðurkápu með sléttri áferð, 100mm einangrun í kjarna og 150mm burðarvegg.
Léttir innveggir eru hefðbundnir heilsparslaðir gipsplötuveggir. Öllum veggjum verður skilað grunnuðum og með tveimur umferðum af vatnsmálingu (málarhvítu).
Stigi og sameign
Stigar eru tveir, sitthvorum meginn við húsið. Stigarnir eru forsteyptir. Handlisti er öðru megin við stiga. Sameign/lagnageymsla ásamt geymslum fyrir íbúðir á efri hæð er flísalagt. Allt þetta rými er skilast í því ástandi sem það er núna. Geymslum er skilað með hvítum yfirfeldum hurðum.
 Loft
Loft á efri hæð eru lokuð með raflagnagrind og gipsplötum þannig að lofthæð timburþaks sé nýtt. Loft eru sandspörsluð, grunnuð og máluð í hvítum loftmálningarlit. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á (málarahvítt).
Gólfefni
Flísar eru á gólfum á baðherbergi/salerni og forstofu/anddyri í íbúðum en einnig á þvottur/geymsla í neðri íbúðum. Flísar eru á veggjum þar sem sturtan er staðsett og að vegg þar sem handklæðaofn er. Öðrum rýmum er ekki skilað með gólfefni.
 Innréttingar
Sérsmíðuð innrétting frá HTH frá Ormsson, plasthúðuð (CPL).
Borðplata er úr 30mm þykk, plasthúðuð spónarplata (HPL).Íbúðum er skilað með innréttingum í eldhúsum, baðherbergjum og fataskápum í öllum herbergjum ásamt  forstofuskápum. Eldhúsinnrétting skilast með vaski og blöndunartæki. Spanhelluborð, vifta í innréttingu eða á eyjuháfi þar sem við á ásamt ofni með blæstri er frá Ormsson. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu.
 Baðherbergi
Á baðherbegjum eru gólf flísalögð ásamt hluta af veggjum eins og fram kemur í gólfefna kaflanum. Sérsmíðuð innrétting frá HTH frá Ormsson. 
Á baðherbergi er handlaug, handlaugstæki, handklæðaofn, vegghengd klósettskál, klósett seta og klósett skjöldur. Allt frá Byko.
Sturtubotninn er flísalagður með 80cm. rennu. Sturtuþil 100x210cm úr hertu gleri.
Gluggar og hurðir
Gluggar og útihurðir eru úr ál-/trékerfi. Að innan eru póstar og karmar úr tré, að utan eru þeir klæddir áli. Tvöfalt einangrunargler er í gluggum. Allar innihurðir eru frá Birgisson. Hvítar yfirfeldar hurðir.
 Verandir
Verandir eru fyrir framan íbúðir á neðri hæð, báðar eru með timburpalli og timbur skjólvegg á milli. Stórar svalir fylgja íbúðum á efri hæð.
 Hitakerfi og neysluvatnslagnir
Íbúðir eru hitaðar upp með gólfhitakerfi frá Danfoss. Heitt neysluvatn verður upphitað kalt vatn frá varmaskipti.
 Snjóbræðsla
Snjóbræðsla verður sett í öll bílastæði einnig í tröppur og gönguleið að inngöngum íbúða á neðri hæð.
Raflagnir
Raflagnir eru lagðar á hefðbundinn hátt í veggjum, lofti og á gólfi. Rofar og tenglar eru hvítir.
Greinatöflur verða í hverri íbúð.
Sorp
Hverri íbúð er skilað með sorptunnuskýli sem rúmar tvær ruslatunnur. Hurðar, lok og pumpur á sorptunnum fylgja ekki. Lóð er ekki skilað með grindverki í kringum lóð. Kaupendur allra íbúða koma sér saman um grindverkar val og er grindverk valið í samvinnu með nærliggjandi lóðum þar sem við á.
 
Frágangur lóðar og ofanvatnslausnir
Gert er ráð fyrir 2 bílastæðum fyrir hverja íbúð. Frágangur á lóðamörkum skal vera í samráði við umráðendur aðliggjandi lóða.
Bílastæði verða hellu lögð með 10x20 ljósgráum hellum. Gras er sett á aðra hluta lóðarinnar. Snjóbræðsla verður lögð undir allar hellur og stiga. Rafmagnröri verður komið fyrir í bílastæði þannig að hver íbúð geti sett upp rafbílahleðslu.
Öll efni og vinna skulu vera í samræmi við ÍST staðla og reglugerðir.
 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/05/202124.750.000 kr.80.000.000 kr.550.6 m2145.296 kr.
27/03/201953.600.000 kr.70.000.000 kr.136 m2514.705 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfhólsvegur 23
3D Sýn
Álfhólsvegur 23
200 Kópavogur
121.2 m2
Fjölbýlishús
413
866 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Reynigrund 43
Bílskúr
Skoða eignina Reynigrund 43
Reynigrund 43
200 Kópavogur
152.2 m2
Raðhús
413
775 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 4 - 404
Bílastæði
Hafnarbraut 4 - 404
200 Kópavogur
120 m2
Fjölbýlishús
413
883 þ.kr./m2
105.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 6 - 305
Bílastæði
Hafnarbraut 6 - 305
200 Kópavogur
146.9 m2
Fjölbýlishús
514
810 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache