Fasteignaleitin
Skráð 24. sept. 2026

Ásvellir 7 - 203

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
118.8 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
108.900.000 kr.
Fermetraverð
916.667 kr./m2
Fasteignamat
2.376.750.000 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2517747_33
Landnúmer
229960
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9,  þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur.  Íbúðirnar eru með samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði.
Glæsileg 118,8fm fjögurra herbergja íbúð á annari hæð í nýju 24 íbúða fjölbýlishúsi ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 12,1fm. Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, 2 baðherbergi, 3 svefnherbergi, geymslu nr B42 og stæði í bílageymslu. Ásvellir 7 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. 
Sjá nánar ÁSVELLIR
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is 


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa góðum fataskáp frá GKS. 
Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Eldhús er opið við stofu og borðstofu. 
Þvottahús / Búr er innaf eldhús með innrétting frá GKS. 
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með gluggum á tvo vegu útgengt út svalir. 
Hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi, skápar frá GKS.
2 Svefnherbergi með skápum frá GKS. 
Baðherbergi með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Í kjallara er stæði nr B 42 í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. 

Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð.  Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki. 

Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins.  Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d. gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús. 


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Daggarvellir 4A
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Daggarvellir 4A
Daggarvellir 4A
221 Hafnarfjörður
102,2 m2
Fjölbýlishús
514
684 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsgata 25
Opið hús:10. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þórsgata 25
Þórsgata 25
101 Reykjavík
99 m2
Fjölbýlishús
513
949 þ.kr./m2
94.000.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 7
Bílskúr
Skoða eignina Barðastaðir 7
Barðastaðir 7
112 Reykjavík
140,6 m2
Fjölbýlishús
412
703 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 94 403
Bílastæði
Hverfisgata 94 403
101 Reykjavík
123,1 m2
Fjölbýlishús
312
958 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin