Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
**FJÁRFESTINGARKOSTUR - FRAMTÍÐARMÖGULEIKAR Á AÐ BREYTA HÚSNÆÐI Í ÍBÚÐ EÐA ÚTLEIGUHERBERGI**Um er að ræða atvinnuhúsnæði á 3. hæð á grónum stað í miðju íbúðahverfi í Breiðholti með alla helstu þjónustu í næsta nágrenni ásamt skóla, leikskóla, strætóleiðum, sundlaug, íþrótta-og útivistarsvæðum. Búið er að skipta rýminu upp í 5 herbergi með aðgengi að salerni og sturtu, eldhúsi og tengi fyrir þvottavél Eignin er skráð 104,7 fm samkvæmt HMS en gólfflötur er töluvert meiri (ca. 150 fm) þar sem mikið rými fer undir súð.
Hugsanlega er hægt að breyta eigninni í íbúðarhúsnæði en það hefur verið gert í öðrum eignum í húsinu. Rýmið er með möguleika á miklu útsýni ef bætt yrði við gluggum og svölum.
Sameiginlegur inngangur inn í eignina sunnan megin við hús - Snyrtilegur stigagangur.
Eignin skiptist í:Stigahús, anddyri, herbergjagang, fimm misstór herbergi öll með þakglugga og tengi fyrir þvottavél, vask og sturtu, sameiginlegt baðherbergi með salerni, sturtu og innréttingu með vaski.
Nánari lýsing á eign:Komið er inn um sameiginlegan inngang í húsnæði sunnan megin í húsi. Þegar komið er upp stigann er komið inní anddyri og á herbergjagang. Af herbergjagangi er gengið inn í herbergin fimm:
Herbergi I sem er stærra en hin með lítilli setustofu og eldhúsaðstöðu, tengi fyrir þvottavél og svefnherbergi innaf. (ísskápur og uppþvottavél fylgir með)
Herbergi II með nettri eldhúsaðstöðu í öðrum endanum, í hinum endanum er búið að stúka af rými með sturtu, vaski og tengi fyrir þvottavél.
Herbergi III með stúkað af í öðrum endanum rými með sturtu, vaski og tengi fyrir þvottavél.
Tvö rúmgóð herbergi með sameiginlegt rými fyrir framan herbergin með nettri setustofu og vaski, stórir þakgluggar yfir rýminu sem gefa mikla birtu, þar er einnig stúkað af rými fyrir sturtu, vask og tengi fyrir þvottavél.
Húsið var yfirfarið og tekið út af verkfræðistofu fyrir nokkrum árum síðan og lagfært það sem þurfti:-Húsið múrviðgert og málað
-Þak málað
-Gler endurnýjuð eftir þörfum
-Þeir þakgluggar sem átti eftir að endurnýja voru endurnýjaðir
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.