Fasteignaleitin
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 9. júlí 2026

Kirkjubraut 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
151.3 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
792.465 kr./m2
Brunabótamat
66.450.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20682221
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 151,30fm hæð, þar af 30,4fm bílskúr, við Kirkjubraut 19. Um er að ræða bjarta og hlýlega eign með góðu flæði milli rýma, rúmgóðu eldhúsi, borðstofu, stofu, snyrtilegu baðherbergi, góðum svefnherbergjum og bílskúr. Eignin hefur góða birtu og skemmtileg rými fyrir fjölskylduna. Um er að ræða steinsteypt þribýlishús sem stendur á gróinni eignarlóð með einstöku óhindruðu útsýni til sjávar og góðri aðkomu fyrir framan hús. 

Nánari lýsing
Eldhús: Rúmgott og vel skipulagt eldhús með dökkri innréttingu, góðu skápaplássi og stórri eyju. Í eldhúsi er innbyggður ofn, helluborð í eyju og gott vinnupláss. Búið er að undirbúa tengingu og gera ráð fyrir plássi innan innréttingar fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhúsið er bjart með stórum gluggum og fallegri birtu.
Borðstofa: Björt og rúmgóð borðstofa með góðu plássi fyrir stórt borðstofuborð. Falleg tenging er frá borðstofu að eldhúsi og stofu sem skapar gott flæði í daglegri notkun.
Stofa: Hlýleg og sérlega notaleg stofa með fallegum arin sem gefur rýminu mikinn karakter. Stofan er björt með góðum gluggum og skemmtilegri stemningu. Rýmið býður upp á góða möguleika fyrir setustofu, fjölskyldurými og hefru verið notað sem auka svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Herbergið er hlýlegt, með góðri birtu.
Svefnherbergi I: Rúmgott barnaherbergi þar sem svalir hafa verið yfirbyggðar og nýttar sem hluti af rýminu. Athugast að yfirbyggingin er ekki skráð í eignaskiptayfirlýsingu þar með ekki skráðir fermetrar.
Svefnherbergi II: Rúmgott  með parket á gólfi
Baðherbergi: Snyrtilegt og smekklega endurnýjað baðherbergi með fallegri innréttingu, stórum spegli með lýsingu, sturtu með glerþili og fallegum blöndunartækjum. Flísalögn og efnisval gefur rýminu hlýlegt yfirbragð.
Bílskúr er mjög rúmgóður 30,4 fm2, með gönguhurð.


Framkvæmdir:
- Baðherbergi endurnýjað 2025
- Skipt um parket 2018
- Eldhús endurnýjað 2018
- Gluggi inn í snjónvarpsstofu endurnýjaður 2018
- Neysluvatnslagnir lagðar upp í íbúð og tengt 2025
- Sólstofa/herbergi gert yfir svölum yfir anddyri 2024 auka fermetrar óskráðir

Húsið er á góðum stað í friðsælli götu við Kirkjubraut á Seltjarnarnesi. Stutt er í verslanir og þjónustu á Eiðistorgi, í næsta nágrenni er  leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, sundlaug, íþróttasvæði Gróttu og fjölbreytt útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir
Victor Levi R. Ferrua, Löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222 / victor@fastborg.is
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447 / gunnlaugur@fastborg.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3.Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina HJALLABRÚN 23
Bílskúr
Skoða eignina HJALLABRÚN 23
Hjallabrún 23
810 Hveragerði
144.9 m2
Parhús
514
620 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Freyjugata 28
Skoða eignina Freyjugata 28
Freyjugata 28
101 Reykjavík
143.6 m2
Fjölbýlishús
624
1079 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 3
Bílskúr
Skoða eignina Vetrarbraut 3
Vetrarbraut 3
815 Þorlákshöfn
143.9 m2
Parhús
43
486 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (201)
1.jpg
Eirhöfði 7a (201)
110 Reykjavík
136.4 m2
Fjölbýlishús
413
1004 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin