Skráð 12. apríl 2021
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
67.400.000 kr.
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
100120421
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Svalir
Verönd, svalir og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NOTALEGT EINBÝLISHÚS Á GOLFVELLI* - *GRÓIÐ OG FALLEGT UMHVERFI*

Rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum með snyrtilegum lokuðum garði  með einka sundlaug í 2. línu frá golfvelli á hinu vinsæla Las Ramblas golfsvæði, um 50 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi,  gestasnyrting, stofa/borðstofa í opnu rými, vel útbúið eldhús og geymsla. Arinn í stofu. Loftkæling/hiti og auk þess miðstöðvarhitun. Stór suðurverönd út frá stofu með með góðu aðgengi að garðinum.  Þakverönd með góðu útsýni. Rými fyrir tómstundir með aðgengi frá garðinum. Sér bílastæði.

AUÐVELD KAUP - AFHENT STRAX. HÚSGÖGN FYLGJA.


Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is


Húsið er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig stutt frá La Fuente verslana og veitingahúsakjarnan, Aldi, Mercadona og fleiri verslunum. Skemmtilegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romero, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl.
Notalegt draumahúsinu fyrir fjölskylduna eða vinahópinn og fólk sem vill njóta lífsins í golfi og góðu veðri allt árið.

Verð: 449.000 Evrur. (ISK. 67.400.000,- miðað við gengi 1E=150ISK.)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.


Eiginleikar: golf, einkasundlaug, sér garður, arinn, ofnahitun, air con, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.eignir.isEignir í sölu

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
110 m2
Fjölbýlishús
423
627 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Finestrat - Einbýli m/Sundlaug
Finestrat - Einbýli m/Sundlaug
Spánn - Costa Blanca
200 m2
Einbýlishús
433
325 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Punta Prima
Sumareignir Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
150 m2
Raðhús
534
465 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
Spánn - Costa Blanca
144 m2
Einbýlishús
534
447 þ.kr./m2
64.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache