Skráð 6. nóv. 2025

Kotabyggð 15

SumarhúsNorðurland/Akureyri-606
179.4 m2
6 Herb.
Verð
220.000.000 kr.
Fermetraverð
1.226.310 kr./m2
Fasteignamat
90.900.000 kr.
Brunabótamat
116.500.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2017
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2338953
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Síðan 2017
Raflagnir
Síðan 2017
Frárennslislagnir
Síðan 2017
Gluggar / Gler
Síðan 2017
Þak
Síðan 2017
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Hvammur - 466 1600
Kotabyggð 15 - atvinnutækifæri í fallegu umhverfi.

Skemmtilega hönnuð sumarhús á stórri eignarlóð í Vaðlaheiði gegnt Akureyri.  Eignin er í raun þrjár íbúðir með sérinngangi, einingar sem voru sérstaklega hannaðar til ferðaþjónustu.  Annars vegar er um að ræða tvær sambyggðar 3ja-4ra herbergja 75 m² íbúðir á tveimur hæðum (hæð og ris) og hins vegar  29,6 m² stakstætt hús, sem einnig er á tveimur hæðum (hæð og ris).  Íbúðirnar eru allar í svipuðum stíl, grófsteypa á gólfum og ljós viðarklæðning á veggjum og loftum - steypt gólf og gólfhiti.  Stærri íbúðirnar eru svipaðar að stærð og lögun, liggja samsíða og skiptast þannig að á neðri hæðum eru gangur/forstofa, eitt svefnherbergi, baðherbergi, stofa og eldhús í einu rými.  Á efri hæðum/risi er setustofa og eitt svefnherbergi.  Úr stofu er farið út á sólpalla til suðurs og þar eru heitir pottar.  Minna húsið er með svipuðu sniði.  Á neðri hæð er forstofa með þvottavél, baðherbergi og eldhús, stigi er uppí ris og þar er svefnrými.  Pallur og pottur er norðan við húsið.
 
Staðsetning eignarinnar er mjög góð – frábært útsýni inn Eyjafjörðinn og yfir Akureyri – aðeins 7 mínútna akstur til Akureyrar og göngufæri í Skógarböðin.
Eignin er í fullum rekstri allan ársing hring og töluvert er um framvirkar bókanir.  Eignin er auglýst undir vörumerkinu Viking Cottages sem fylgir með við sölu og heimasíðan er www.vikingcottages.is
Eigninni fylgir allt innbú, rekstarvörur, lén, heimasíða og aðgangur að bókunarkerfum.

Bókunarkerfið er öflugt og Viking Cottages hefur fengið frábæra einkunn og umsögn gesta bæði á Airbnb, Expedia, Booking og vikingcottages.is.
Öll húsin eru hönnuð af Arnari Jónssyni hjá Arkís arkitektastofu, fullinnréttuð og allur húsbúnaður og húsgögn fylgja ásamt 3 útigrillum og 3 hitaveitupottum.
Við byggingu og skipulag húsanna hefur verið vandað mjög til verks og má þar nefna að allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr krossviðsplötum, og einnig veggir og gólf nema á jarðhæð er steypt gólf. Á baðherbergjum eru vandaðar ítalskar flísar. Við efnisval og innbú er einnig vandað val en þar má nefna Natuzzi leðursófa og stóla, ljós frá Lumex, rúmin eru Þór frá Svefn og heilsu, náttborð frá Fako, Bang og Olufsen hljómkerfi og Vola blöndunartæki frá Tengi er i öllum húsunum. 3 hitaveitupottar með loki og 3 útigrill frá Weber. Leirtau er úr handgerðum leir og eldhúsáhöld eru einnig vönduð. Allt lín, handklæði og sloppar eru sérmerkt Vikingcottages með logo og nafni.
Áhugasamir geta fengið senda kynningu og rekstrartölur. 

Nánari lýsing á hverri eign fyrir sig

Hús 15A:
Nútímalegt, rúmgott og vel skiplagt með hárri lofthæð. Íbúðin er með sér verönd með heitum potti sem snýr í hásuður Stórir gluggar í stofu í átt að Akureyri. 
Tvö svefnherbergi annað er á neðri hæð og hitt er á efri hæðinni, skápur í herberginu á neðri hæð. Baðherbergi flísalagt að stórum hluta með walk inn sturtu og upphengdu salerni. Þvottaðastaða fyrir þvottavél og þurrkara í lokuðum skáp, flísar á gólfi á baðherbergi en steypt á neðri hæð og hertur krossviður á efri hæð. Sér bílastæði fyrir framan húsið. 
Hús 15B:
Nútímalegt, rúmgott og vel skiplagt með hárri lofthæð. Íbúðin er með sér verönd með heitum potti sem snýr í hásuður.
Tvö svefnherbergi annað er á neðri hæð og hitt á efri hæðinni, skápur í herberginu á neðri hæð . Baðherbergi flísalagt af stórum hluta með walk inn sturtu og upphengdu salerni og opnanlegur gluggi. Þvottaðastaða fyrir þvottavél og þurrkara í lokuðum skáp, flísar á gólfi á baðherbergi en steypt á neðri hæð og hertur krossviður á efri hæð. Sér bílastæði fyrir framan húsið. 
Hús 15C:
Nútímalegt, rúmgott og vel skiplagt með hárri lofthæð. Íbúðin er með sér verönd með heitum potti sem snýr í norðvestur.
Eitt svefnherbergi.Baðherbergi flísalagt af stórum hluta með walk inn sturtu og upphengdu salerni. Þvottaðastaða fyrir þvottavél, flísar á gólfi á baðherbergi en steypt á neðri hæð og hertur krossviður á efri hæð. Sér bílastæði fyrir framan húsið. 

Einstök eign sem vert er að skoða - sjón er sögu ríkari.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2017
3 m2
Fasteignanúmer
2338953
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
24.650.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin