Fasteignaleitin
Skráð 30. okt. 2026

Ásbúð 43

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
220.6 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
174.900.000 kr.
Fermetraverð
792.838 kr./m2
Brunabótamat
105.450.000 kr.
Byggt 1979
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
206916024
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Jason sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Ásbúð 43, glæsilegt raðhús í Garðabænum. Eignin er 220 fm. á tveimur hæðum með rúmgóðum bílskúr og stórum suðurgarði.
Húsið er vel skipulagt og skiptist í 4 svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö baðherbergi, stórt þvottahús og hol. 

Nánari lýsing: 
Komið er inn í flísalagða forstofu og hol með fataskápum
Baðherbergi: á hægri hönd með salerni, handlaug og sturtu.
2 svefnherbergi á neðri hæð: Tvö rúmgóð herbergi eru á neðri hæðinni, stórt unglingaherbergi og annað sem nú er nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Þvottahús: Stórt, flísalagt þvottahús með góðum innréttingum og skápum.

Glæsilegur stigi milli hæða með gler-handriði og stórir gluggar setja glæsilegan og nútímalegan svip á alrými hússins.
Stofur: Opið alrými sem rúmar glæsilegt eldhús, borðstofu og setustofu. 
Eldhús: Eldhúsinnrétting er viðarlituð með góðu skápa- og vinnuplássi, ljúflokum á skúffum og tvöföldum ísskáp.
Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með stórum sturtuklefa, upphengdu salerni og viðarinnréttingu.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi inn af.
Barnaherbergi eru tvö á efri hæðinni, annað mjög stórt en hitt minna.
Innihurðir og innréttingar eru með hvíttuðum eikarspón. 
Alrými, gangvegir og baðherbergi eru flísalögð, eikarparket er á herbergjum.
.
Bílskúr er tvöfaldur og rúmgóður með hita og rafmagni.
Garður: Gengið er út úr borðstofu á stóran snyrtilegan pall með heitum potti. Lóðin er skjólsæl og snýr í suður.

Húsið er í góðu ástandi að utan. Sumarið 2025 var þak málað, skipt um alla nagla og flasningar endurnýjaðar. Nýlega voru allar kaldavatns lagnir hreinsaðar og fóðraðar.

Þetta er einstaklega vel staðsett eign með tilliti til skóla, leikskóla og þjónustu almennt.

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn í síma 7751515 eða í netfangið jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Betri Stofan Fasteignasala
https://www.betristofan.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturbrú 1
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:04. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vesturbrú 1
Vesturbrú 1
210 Garðabær
181,7 m2
Fjölbýlishús
624
880 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Hamraborg 38
Opið hús:03. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hamraborg 38
Hamraborg 38
200 Kópavogur
71,7 m2
Fjölbýlishús
211
821 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 18-20
Bílastæði
Efsta hæð
Tröllakór 18-20
203 Kópavogur
100,9 m2
Fjölbýlishús
312
788 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Birkiholt 4
Skoða eignina Birkiholt 4
Birkiholt 4
225 Garðabær
76,2 m2
Fjölbýlishús
211
852 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin