Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Lækjasmári 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
120.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
763.289 kr./m2
Brunabótamat
69.170.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22311036
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Ragnar Þorsteinsson, löggiltur fasteignasali og LIND fasteignasala kynna eignina Lækjasmári 4, rúmgóða, bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 4. hæð í vönduðu og glæsilegu húsi. Eignin er einkar vel umgengin og sameign og húsið sjálft hafa fengið góða umhirðu og viðhald. Vel rekið húsfélag er starfrækt. Úr Lækjasmára er stutt í margskonar verslun og þjónustu, auk skóla og útivistar. Stutt að helstu stofnbrautum og í almenningssamgöngur.

Nánar um eignina:
Birt stærð eignar er samtals 120,4m2, sem skiptist þannig: Íbúð 108,9m2, sérgeymsla í kjallara 5,3m2 og bílastæði í lokuðum bílakjallara 11,5m2
Að auki eru geymsluskápar fyrir hverja íbúð í sameign, sem flestir nýta undir t.d. dekk. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Tengi fyrir hleðslustöð er við bílastæði og hleðslustaurar við næg sameiginleg bílastæði utan við húsið.
Tvær lyftur eru í húsinu.

Komið er inn frá sameign í hol með fataskáp. Eldhúsið er með fallegri innréttingu sem filmuð hefur verið í ljósum lit og góðu skápaplássi, flísar á milli skápa.  Borðkrókur er opinn inn í stofu.  Rúmgóð og björt stofa / borðstofa með útgengi út á rúmgóðar svalir, sem eru yfirbyggðar að hluta. Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf er með sturtuklefa, baðkari og hvítri innréttingu. Þvottahúsið er með skolvaski, skápum og hillum. Þrjú góð svefnherbergi með fataskápum. Gott hol er í íbúðinni, sem t.d. er hægt að nýta sem sjónvarpshol.
Á gólfum íbúðar í alrými og herbergjum er parket, á eldhúsi eru ljósar korkflísar, baðherbergi, þvottahús með flísum..
Húsið er klætt að utan með álklæðningu. Sumarið 2024 voru steyptir fletir utan á húsinu málaðir, sem og gluggar utanverðir. Skipt hefur verið um opnanleg fög.


// VILDARKORT LINDAR //
Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar:
Parki, Z-brautir og gluggatjöld, S. Helgason steinsmiðja, Húsasmiðjan, Húsgagnahöllin, Dorma, Betra Bak, Vídd, Sýn, Flugger litir og Securitas

Allar nánari upplýsingar veitir:
RAGNAR ÞORSTEINSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI | S. 897-3412 | RAGNAR@FASTLIND.IS


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Sjávarborg 1 A
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 49
Skoða eignina Njálsgata 49
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús
312
797 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 11
Bílastæði
Skoða eignina Mosagata 11
Mosagata 11
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
4
879 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin