Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna glæsilega og vel skipulagða 4 herbergja íbúð á jarðhæð með verönd við Ársali 1 í Salahverfi Kópavogs. Samkvæmt yfirliti frá fasteignaskrá Þjóðskrá Íslands er eignin samtals skráð 122,3 m2, þar af er geymsla skráð 7,1 m2.
Skipulag íbúðarinnar er mjög gott, þrjú rúmgóð herbergi, fallegt eldhús með góðum borðkrók sem tengist við rúmgott alrými. Rúmgott og fallegt baðherbergi, þvottahús inn af eldhúsi. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði staðsett á plani fyrir framan húsið. Frábær staðsetning, örstutt stutt í skóla, leikskóla,sundlaug, matvöruverslun, heilsugæslu og aðra þjónustu. Nánari lýsing: Forstofa: Mjög rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóðir fataskápar.
Herbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi 3: Parket á gólfi og fataskápur. Sama stærð og herbergi 2. ( Ath. vantar mynd af þessu herbergi).
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hornbaðkar með nuddi, sturta, góð baðinnrétting.
Stofa: Parket á gólfi, útengt á rúmgóða verönd sem snýr til suðurs. Svalirnar eru með opnanlegri svalalokun.
Eldhús: Flísar á gólfi. rúmgóð innrétting með tengi fyrir uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð með háf fyrir ofan.
Þvottahús: Flísar á gólfi, vinnuborð, hillur á vegg ásamt efri skápum.
Geymsla: Staðsett í kjallara hússins.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er staðsett í sameign á fyrstu hæð hússins.
innihurðar ásamt skápum og innréttingum í eldhúsi og baðherbergi eru filmaðar. Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.