Fasteignaleitin
Skráð 18. apríl 2026

Öldugata 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
132.8 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
125.000.000 kr.
Fermetraverð
941.265 kr./m2
Fasteignamat
85.750.000 kr.
Brunabótamat
61.100.000 kr.
Mynd af Björgvin Guðjónsson
Björgvin Guðjónsson
www.eignatorg.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2002150
Landnúmer
100659
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Þarfnast endurnýjunar
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugað er að skipta um glugga í húsinu.
Gallar
Ekki er full lofthæð í kjallara.
Kvöð / kvaðir
Íbúð í kjallara er skráð hjá Fasteignaskrá sem tómstundaherbergi og snyrting.
Eignatorg kynnir: Tveggja íbúða eign sem skiptist í sérlega bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með gluggum á þrjá vegu og rúmgóða og bjarta 2ja herbergja íbúð í kjallara í virðulegu húsi á þessum vinsæla stað. Aukin lofthæð er á fyrstu hæðinni. Íbúðirnar eru á sama fastanúmeri og seljast því í einu lagi. 
Húsið var tekið og endurnýjað með vönduðum hætti fyrir ca 22 árum síðan og býr enn vel að þeim framkvæmdum.


Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúð á fyrstu hæð 67,9 fm og íbúð í kjallara 64,9 fm. Samtals er eignin því skráð 132,8 fm.

Nánari lýsing: Íbúð á fyrstu hæð:
Endaíbúð í eftirsóttu hverfi með stórum gluggum á þremur hliðum.
Komið er inn í forstofugang með fataskáp og parketi á gólfi þaðan sem opið er inn í alrýmið.
Af ganginum er gengið inn í tvö herbergi og baðherbergi. Annað herbergið er með fataskáp og glugga, en hornherbergið er með gluggum á tvo vegu. Bæði eru með parketi á gólfi. Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu, sturtu og glugga.
Í alrými er björt stofa með parketi á gólfi, sér smíðuðum bókahillum og glugga til suðurs. Opið eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu, glugga og hurð út á suðursvalir. Stigi er af svölunum og niður í sameiginlegan suðurgarð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
 
Íbúð í kjallara: Stofa með parketi á gólfi og glugga til suðurs. Eldhús er með parketi á gólfi, fallegri innréttingu, gluggum á tvo vegu og borðkrók. Baðherbergi er með flísum á gólfi, flísum á veggjum, baðkari, innréttingu og glugga. Einnig er bjart herbergi með parketi á gólfi, skáp og gluggum á tvo vegu. Eignin á tvo geymsluskápa í sameign í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stigahlíð 35
Skoða eignina Stigahlíð 35
Stigahlíð 35
105 Reykjavík
122.5 m2
Fjölbýlishús
413
750 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 37
Skoða eignina Mýrargata 37
Mýrargata 37
101 Reykjavík
160.7 m2
Fjölbýlishús
322
933 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Móbergsskarð 8
Skoða eignina Móbergsskarð 8
Móbergsskarð 8
221 Hafnarfjörður
155.4 m2
Hæð
413
804 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 69
Opið hús:15. júlí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Vesturgata 69
Vesturgata 69
101 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
884 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin