SKRIÐUSTEKKUR 25, 109 REYKJAVÍK. Bjart og mikið
endurnýjað fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með suður verönd í rólegum botnlanga við Skriðustekk 25, 109 Reykjavík.
Birt stærð eignar er skráð 104,3 fm. hjá HMS.
Húsið er timburhús á steyptri plötu og var byggt árið 1968.
ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing:Komið er inn í flísalagða forstofu með hvítum fataskáp.
Björt stofa/borðstofa með aukinni lofthæð er í opnu rými með eldhúsi. Innbyggð led lýsingu með dimmerum.
Fljótandi eikarparket á gólfi. Úr rýminu er útgengt á um 94 fm. timburverönd til suðurs úr lerki sem er lokuð af með tveggja metra háum skjólvegg úr furu.
Búið er að gera ráð fyrir lögnum fyrir heitan pott.
Eldhús með hvítri innréttingu, góðu skúffuplássi og tækjaskáp. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Spanhelluborð og innbyggður bakaraofn í vinnuhæð.
Þrjú parketlögð herbergi, öll með fataskápum.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og að hluta á veggjum. Rauð innrétting með vaski og spegli. Upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu og glerþili.
Gólfhiti er á eigninni.
Flíslagt þvottahús með skolvaski og góðu vinnuborði. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengi er úr þvottahúsi í garð til vesturs.
Gott geymsluloft er yfir stórum hluta eignarinnar.
Köld útigeymsla er staðsett að framanverðu.
Eignin hefur verið endurnýjuð að stórum hluta.M.a. var klæðning að utan endurnýjuð árið 2018. Þá var eins skipt um glugga og gler í svefnherbergjunum þremur.
Skipt var um einangrun í veggjum og rakasperru árið 2016. Sama ár var plata undir húsinu steypt, settur gólfhiti, gerð aukin lofthæð í stofu með innbyggðri lýsingu, allir veggir milli herbergja endurbyggðir, nýjar lagnir, rafmagn endurnýjað og sett ný rafmagnstafla.
Miðað við eignir í nágreni, ætti leyfi til að byggja bílskúr framan við húsið að vera auðsótt. Eins er möguleika á um 36 fm. stækkun úr stofu þar sem timburverönd er í dag. Allt þó háð leyfisveitingu.
Skriðustekkur 25 er vel staðsett eign. Húsið stendur innst í rólegum botnlanga í skjólgóðu og grónu hverfi í göngufæri við Elliðaárdalinn.
Stutt er í alla helstu þjónustu. ATH. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Vinsamlega bókið skoðun. Nánari upplýsingar veitir:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is