BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FLJÓTSMÖRK 6-12 ÍBÚÐ 0103, 810 Hveragerði. Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi með sérinngang.
Stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: forstofa, stofa, borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar. Geymsla í kjallara. Í sameign er hjóla-vagnageymsla.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands:
Stærð: Íbúð 88,4 m², geymsla 7,1m², samtals 95.5 m².
Brunabótamat: 46.950.000kr.
Fasteignamat: 46.450.000 kr.
Byggingarár: 2006
Byggingarefni: Steypa
Nánari lýsing:Sérinngangur.
Anddyri með fjórföldum fataskáp.
Stofa og borðstofa í sameiginlegu rými, opið er að hluta til inn í eldhús, útgengt er frá stofu í garð með hellulagðri suðurverönd.
Eldhús er að hluta til afstúkað frá borðstofu, gott borðpláss, stálvaskur. Siemens helluborð og ofn í vinnuhæð, vifta, Simens uppþvottavél og Electrolux ísskápur fylgja.
Hjónaherbergi með fimmföldum fataskáp,
svefnherbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, vegghengt salerni, vaskinnrétting.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Þar er borð með stálvaski, efriskápar og pláss fyrir eina vél.
Innréttingar og innihurðir eru úr eik, mikið skápapláss.
Gólfefni: Flæðandi harðparket er á stofu, borðstofu, eldhúsi og svefnherbergjum. Flísar á gólfi í anddyri, baði og þvottahúsi.
Í kjallara er
sérgeymsla með máluðu gólfi.
Nýleg hellulögð verönd 11,7 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands, er út frá stofu.
Húsið stendur á steyptum kjallara byggt upp með forsteyptum einingum árið, í húsinu eru alls 17 íbúðir. Húsið er 3-4 hæða auk kjallara. Yfirborð eininga hússins er lagt með kvartsmulningi, en að auki eru nokkrir fletir hússins klæddir lárétt liggjandi bárujárni í lit og timbri, setrusvið. Á lóðinni eru 35 bílastæði, þar af 3 fyrir hreyfihamlaða. Sameiginleg lóð er snyrtileg og frágenginn, hellulögð stétt liggur að húsi. Sorptunnuskýli er framan við húsið.
Í sameign í kjallara er sérgeymsla og sameiginlega vagna- hjólageymsla. Í sameign í kjallara er einnig inntaksrými. Stigi og lyfta í sameign.