Fasteignaleitin
Opið hús:03. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 29. ágúst 2026

Bragagata 25

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
98.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.000.000 kr.
Fermetraverð
997.963 kr./m2
Fasteignamat
84.250.000 kr.
Brunabótamat
57.700.000 kr.
Mynd af Daði Runólfsson
Daði Runólfsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1985
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2007606
Landnúmer
102250
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi/Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Sumt í lagi - sjá lýsingu
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Mála eða endurnýja þyrfti panel utan á svölum ásamt svalahurð og timbri við hana að mati seljanda. 
Gallar
Einstaka sinnum getur dropað inn frá samskeytum á útbyggingu/sólstofu í stofu þegar gerir mikla úrkomu í vissri vindátt. Baðgluggi við sturtu þarfnast skoðunar vegna álags frá sturtu. 
Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna:  Bragagata 25, 101 Reykjavík.

Fjögurra herbergja hæð á frábærum stað í Þingholtunum með einkabílastæði. Húsið var byggt árið 1985. Góðar suðursvalir og þvottahús innan íbúðar. Einstaklega vel staðsett fjölskylduíbúð þar sem stutt er í alla þjónustu. 


Nánari lýsing:
Inngangur: Snyrtilegur sameiginlegur inngangur með rishæð. 
Anddyri: Komið er inn í opið anddyri í stofu.
Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting með með tengi fyrir uppþvottavél og bakarofni í vinnuhæð.
Stofa: Rúmgóð með fallegri útbyggingu sem rúmar vel setustofu og borðstofu með beinu aðgengi að góðum svölum.
Herbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með góðum gluggum sem snúa að svölum.
Herbergi II: Gluggar til norðvesturs. 
Herbergi III: Gluggar til norðvesturs. 
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni og innbyggðum sturtutækjum í baðkari/sturtu. Góð innrétting í kringum vask og skápur.
Þvottahús: Innangengt frá baðherbergi með rennihurð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Góð innrétting með skápum.
Geymsla: Sérgeymsla sem er 4,8 fm er á jarðhæð við inngang. 
Bílastæði: Við inngang á lóð. Auðveldlega hægt að koma upp rafhleðslustöð.
Sameiginleg hjólageymsla/geymsla: Bakatil með aðgengi frá garði.
Sameiginlegur garður

Hér gefst frábært tækifæri til að eignast vel staðsetta íbúð á rólegum stað í Þingholtunum í örstuttu göngufæri við allt það sem miðborgin hefur upp á að bjóða. 

Eignin Bragagata 25 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-7606, birt stærð 98.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalbraut 1
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:03. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Dalbraut 1
Dalbraut 1
105 Reykjavík
85.4 m2
Fjölbýlishús
211
608 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0420
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
laugaborg 420 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0420
Laugaborg 0420
105 Reykjavík
112.1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0320
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
laugaborg 320.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0320
Laugaborg 0320
105 Reykjavík
107.5 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
104.400.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0221
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
laugab. 221.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0221
Laugaborg 0221
105 Reykjavík
102.8 m2
Fjölbýlishús
312
972 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin