Fasteignasalan TORG kynnir:
Rúmgóð og björt tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegri blokk á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík. Eignin í heild er skráð 63,2 fm, og skiptist í íbúð 59,6 fm og geymslu 3,6 fm.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is.NÁNARI LÝSING: Íbúðin er á jarðhæð og því bein aðkoma af bílastæði sunnan megin við hús.
Forstofa: Góðir fataskápar og parket á gólfi.
Alrými: Bjart og rúmgott alrými með gluggum til norðurs ásamt útgengi á svalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Viðaráferð á skápum ásamt hvítum efri skápum. Innrétting með ljósri borðplötu. Opið eldhús hluti af alrými. Helluborð, gufugleypir, innbyggð uppþvottavél og bakaraofn.
Stofa og borðstofa: Björt stofa og borðstofa sem hluti af alrými með stórum gluggum til norðurs. Útgengi á svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott með stórum norður glugga og innbyggðum fataskápum ásamt stílhreinu fatahengi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Viðaráferð á innréttingu með hvítri borðplötu og spegla skáp fyrir ofan vask. Baðherbergi er flísalagt með sturtu, upphengdu klósetti og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsla: Í sameign er sérgeymsla, skráð 3,6 fm.
Síðumúli 39 er endurnýjað lyftuhús sem var að hluta til nýbyggt árið 2019.
Íbúðin er staðsett í hluta hússins sem byggður var 2019, húsið er á tveimur hæðum með samtals 10 íbúðum. Sameiginlegur þakgarður er yfir öllum húshlutanum.
Björt og vel skipulögð 2ja herbergja nýleg íbúð ásamt góðri geymslu í sameign. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.