Fasteignaleitin
Skráð 21. feb. 2026

Valshlíð 5 - 113

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
103.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
962.428 kr./m2
Fasteignamat
42.850.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532568
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
13
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Glæsileg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns.
Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

* Quartz-steinn á borðum og milli skápa í eldhúsi
* Gluggar til norðurs og suðurs
* Sér - þvottahús innan íbúðar


Þrír kaupmöguleikar í boði. 
* Hlutdeildarkaup 
* Þarft einungis 10% útborgun
* Búseturéttur 

 
Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð er 103,8 fm þar af 7,8 fm geymsla í kjallara.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, gang, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.
 
Nánari lýsing: 
Í opnu og rúmgóðu anddyri er góður fataskápur.
Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu.
Eldhús er með eyju. Útgengt er á suðursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur.
Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum.
Gott svefnherbergi með fataskáp. 
Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. 
Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu og gráum steinflísum á gólfi. Vaskur í þvottaherbergi.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0068.
Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
 
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 
 
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórufell 8
Skoða eignina Þórufell 8
Þórufell 8
111 Reykjavík
56.8 m2
Fjölbýlishús
211
861 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 304
Strandgata 26 íb. 304
220 Hafnarfjörður
74.3 m2
Fjölbýlishús
211
1170 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 406
Suðurhella 16 íb. 406
221 Hafnarfjörður
122.6 m2
Fjölbýlishús
413
648 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 204
Suðurhella 16 íb. 204
221 Hafnarfjörður
78.4 m2
Fjölbýlishús
211
764 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin