** Opið hús þriðjudaginn 8. september frá kl. 17:20 til 17:50 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 160,5 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Laxatungu 72 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 160,5 m2, þar af raðhús 133,7 m2 og bílskúr 26,8 m2. Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgóða sjónvarpsstofu (svefnherbergi á teikningu, hægt að breyta aftur í svefnherbergi), baðherbergi, þvottahús/geymslu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr, Geymsluloft er í bílskúr. Gott skipulag og fallegar innréttingar frá HTH. Mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Stór afgirt timburverönd með heitum potti. Stórt steypt bílaplan.
Nánari lýsing: Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, helluborð og bakaraofn. Gert er ráð fyrir Amerískum ísskáp í innréttingu. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, "walk-in" sturtu, handklæðaofni og vegghengdu salerni. Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á timburverönd. Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi. Sjónvarpsstofa (svefnherbergi og sjónvarpshol á teikningu) er með parketi á gólfi. Þvottahús/geymsla er í rúmgóðu rými með stórri innréttingu með miklu skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílskúrinn. Bílskúr er með epoxýmálningu á gólfi og mikilli lofthæð. Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Búið er að setja upp gott geymsluloft í bílskúr.
Seljandi lætur klára að klæða neðst á skjólvegg og klárar að klæða og byggja tröppu upp í heitan pott.
Afsal, 441-C-008215/2016. Lóðarleigusamningur, 411-R-007514/2007. Stofnskjal lóðar, 411-S-009631/2007. Lóðamarkabreyting, 411-S-007294/2014. Kvöð, 411-S-010583/2006 - Almennir sölu- og byggingarskilmálar vegna lóða í Leirvogstungulandi. Um sölu og veðsetningu byggingaréttar, um byggingaskilmála, gatnagerð, undirbúning framkvæmda, frágang og notkun lóða, lagnir o.fl. sjá skjalið sjálft. Kvöð, 411-S-010847/2012 - Breytingar á skjali 411-S-010583/2006. Um er að ræða sölu- og byggingarskilmála o.fl. sjá skjalið sjálft. Núverandi skipulag ber ekki saman við teikningar þar sem opnað hefur verið milli þvottahúss og geymslu auk þess sem opnað hefur verið milli sjónvarpshols og svefnherbergis.
** Opið hús þriðjudaginn 8. september frá kl. 17:20 til 17:50 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 160,5 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Laxatungu 72 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 160,5 m2, þar af raðhús 133,7 m2 og bílskúr 26,8 m2. Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgóða sjónvarpsstofu (svefnherbergi á teikningu, hægt að breyta aftur í svefnherbergi), baðherbergi, þvottahús/geymslu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr, Geymsluloft er í bílskúr. Gott skipulag og fallegar innréttingar frá HTH. Mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Stór afgirt timburverönd með heitum potti. Stórt steypt bílaplan.
Nánari lýsing: Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, helluborð og bakaraofn. Gert er ráð fyrir Amerískum ísskáp í innréttingu. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, "walk-in" sturtu, handklæðaofni og vegghengdu salerni. Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á timburverönd. Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi. Sjónvarpsstofa (svefnherbergi og sjónvarpshol á teikningu) er með parketi á gólfi. Þvottahús/geymsla er í rúmgóðu rými með stórri innréttingu með miklu skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílskúrinn. Bílskúr er með epoxýmálningu á gólfi og mikilli lofthæð. Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Búið er að setja upp gott geymsluloft í bílskúr.
Seljandi lætur klára að klæða neðst á skjólvegg og klárar að klæða og byggja tröppu upp í heitan pott.
Verð kr. 128.900.000,-
Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
26/02/2016
23.650.000 kr.
40.000.000 kr.
160.5 m2
249.221 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.