Fasteignaleitin
Opið hús:11. apríl kl 14:00-15:00
Skráð 9. apríl 2026

Þorraholt 19B (304)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
126 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
911.905 kr./m2
Fasteignamat
9.780.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2539653
Landnúmer
234802
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð við Þorraholt 19B í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, baðherbergi, þvottaherbergi og svölum til suðurs ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.thorraholtid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Þorraholt 19B í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 3ja herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu á jarðhæð. 

Íbúð 304: Er glæsileg 126,0 fermetra 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með svölum til suðurs og sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara. Tvær góðar geymslur fylgja íbúðinni sem eru 19,9 fermetrar og 17,7 fermetrar að stærð. Afhending er í júní-júlí 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á svalir frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thorraholtid.is

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar:
Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. Þar sem enn er verið að klára þinglýsingu á eignaskiptasamningi þá eru fastanúmer ekki rétt og verða leiðrétt fyrir kaupsamning um eignina.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2026
Fasteignanúmer
2539653
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Miklabraut 72
Skoða eignina Miklabraut 72
Miklabraut 72
105 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
928 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Þorláksgeisli 17
Bílastæði
Opið hús:13. apríl kl 17:00-17:30
Þorláksgeisli 17
113 Reykjavík
111.7 m2
Fjölbýlishús
413
742 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Bakkatröð 7
Bílskúr
Skoða eignina Bakkatröð 7
Bakkatröð 7
605 Akureyri
171.8 m2
Einbýlishús
514
693 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Skoða eignina Norðurbakki 23
Bílskúr
Skoða eignina Norðurbakki 23
Norðurbakki 23
220 Hafnarfjörður
68.3 m2
Fjölbýlishús
211
994 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin