Fasteignaleitin
Skráð 13. apríl 2026

Eskiás 7 íb201

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
106.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
941.565 kr./m2
Fasteignamat
20.150.000 kr.
Mynd af Darri Örn Hilmarsson
Darri Örn Hilmarsson
Löggiltur fasteignasali
Sérinng.
Fasteignanúmer
2512844_11
Landnúmer
231032
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu:  NÝR ÁFANGI KOMINN Í SÖLU Eskiás 7. Alls 17 íbúðir í þessu nýju götu á besta stað í Garðabæ. Íbúð 201 er 5 herbergja íbúð skráð 106,1 fm, með sérinngangi  og 5,7 fm svalir. 
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu, 4 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar án gólfefna, en votrými er flísalagt.  Nánari upplýsingar veitir Darri Hilmarsson, fasteignasali í GSM: 767-0000, eða darri@fstorg.is


Nánari upplýsingar: Um er að ræða nýbyggingu að Eskiás 7 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, án gólfefna, en votrými eru flísalögð. Svalir eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð.
Bílastæði eru á lóð og gert er ráð fyrir nokkrum fjölda hleðslustæða. Allar íbúðir með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Viðhaldslítil klæðning á húsum og lágmarkssameign tryggir hagkvæman rekstur íbúða. Eskiásinn er í miðju grónu hverfi með alla þjónustu í næsta nágreinni. Skólar, verslun og þjónusta eru allt í kring auk þess sem Garðabær hyggst byggja nýjan leikskóla á Lyngási fyrir neðan Eskiás.

Sjá nánari upplýsingar á Heimasíðu verkefnis hér: ESKIAS.IS

Innréttingar og hurðir: Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir verða hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir (Jeld-Wen Moralt).
Baðherbergi/þvottahús: Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
Heimilistæki: Eldhús skilast með blástursofni, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum. Vifta með kolasíu er í efri skápum yfir helluborði en þar sem að helluborð er staðsett á eyju eða tanga er einungis gert ráð fyrir möguleika á að bæta við viftu.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe. Á baðherbergjum eru tækin krómlituð en í eldhúsi eru vaskur og blöndunartæki svört 
Gólfefni: Íbúðum verður skilað með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft.  
Slökkvitæki og reykskynjari fylgja hverri íbúð. Dyrabjalla og póstkassi er við hvern sérinngang.
Frágangur utanhúss: Útveggir verða einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni. Svalahandrið eru úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Leiksvæði. 
Rafbílahleðsla: Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að eignirnar verði afhentar í apríl/maí 2026
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Ath. innimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar, nánar um skil sjá skilalýsingu seljanda. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnargata 38
Bílskúr
Skoða eignina Hafnargata 38
Hafnargata 38
230 Reykjanesbær
314.3 m2
Atvinnuhúsn.
432
315 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 36
Skoða eignina Naustavör 36
Naustavör 36
200 Kópavogur
84.4 m2
Fjölbýlishús
211
1000 þ.kr./m2
84.400.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 3
Skoða eignina Dalsbraut 3
Dalsbraut 3
260 Reykjanesbær
74.6 m2
Fjölbýlishús
312
709 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Grafhólar 1
Skoða eignina Grafhólar 1
Grafhólar 1
800 Selfoss
191.8 m2
Raðhús
514
516 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin