Fasteignaleitin
Skráð 22. apríl 2026

Risadalur 2 - 101

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
121.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
655.993 kr./m2
Fasteignanúmer
251960213
Húsgerð
Fjölbýlishús

LIND Fasteignasala og OS Eignir kynna með stolti nýjar íbúðir í nýju fjölskylduvænu íbúðarhverfi í Reykjanesbæ. 
Við Risadal 2-4 sem er í nyrsta hluta þessa nýja hverfis er um að ræða samtals 14 íbúðir, 2.-4. herbergja.

Íbúð 101 er 4 herbergja 121,8 fm að stærð og er vel skipulögð. 

- Fullbúnar íbúðir að innan sem utan með gólfefnum.
- Sérinngangur í allar íbúðir.
- Svalir og sólpallar á móti suð-vestri.

Allar nánari upplýsingar veita: 
Hrafnkell P. H. Pálmason - Löggiltur fasteignasali / hrafnkell@fastlind.is  / 690 8236 
Atli Karl Pálmason - Aðstoðarmaður fasteignasala / atli@fastlind.is / 662 4252
Arinbjörn Marinósson - Löggiltur fasteignasali / arinbjorn@fastlind.is / 822 8574
Heimir Hallgrímsson - Löggiltur fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849 0672

Eining má sjá heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna: dalshverfi.is

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Vodafone.

Meðfylgjandi myndir eru úr sýningaríbúð og endurspegla ekki allar eignir í verkefninu.

Úrdráttur úr skilalýsingu. Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.
Frágangur innanhúss:
Innréttingar: Verða frá HTH eða sambærilegum gæðum.
Eldhús: Innrétting í eldhúsi er samkvæmt teikningu og með ljúflokunarbúnaði á skúffum. Með eldhúsinnréttingu fylgir, bakaraofn, helluborð, og háfur með kolasíu af viðurkenndri frá AEG eða sambærilegt. Borðplata verður úr plastefni. Litir og endanlegt efnisval er óráðið og áskilur seljandi sér rétt til breytinga á framkvæmdaferli.
Baðherbergi: Flísar á baði verða 30x60cm eða 60x60cm á veggjum (þar sem við á) og gólfi, Álfaborg eða sambærilegt. Öll salerni eru upphengd og innbyggð í vegg. Á baði er handklæðaofn. Sturta er í öllum íbúðum og sturtubotn flísalagður. Engir speglar eru á baðherbergi.
Hreinlætistæki: Öll blöndunartæki eru af vandaðri gerð, Grohe eða sambærilegt.
Gólfefni: Gólf eru parketlögn í herbergjum og alrými, seljandi áskilur sér rétt á að nota vinylparket í alrými og herbergjum sem og andyri. Öll votrými (baðherbergi og þvottahús) skulu flísalögð. Gólfefni er Bíl frá Álfaborg eða sambærilegt. 
Hurðir: Innihurðir eru yfirfelldar af vandaðri gerð og áferð er hvíttuð eik eða sprautulakkað hvítt. Ringo eða sambærilegt.

Um hverfið:
Nýtt hverfi byggist hratt upp í Dalshverfi III í Innri-Njarðvík. Um er að ræða fjölbýlishús á tveim hæðum og er heildarfjöldi íbúða 146. Stærðir íbúðar eru frá 55-120 m2 og herbergjafjöldi 2ja til 4ra. Hverfið er byggt upp á fjölbreyttan hátt og eru húsin 20 samtals. Hverfið skiptist í stærri og smærri fjölbýli með tveimur til þrettán íbúðum í hverju húsi.

Verið er að leggja lokahönd á framkvæmdir við nýjan leikskóla innan hverfisins og stórglæsilegur Stapaskóli er í göngufjarlægð. Stutt er út á Reykjanesbrautina og um 15 mínútna akstur að Hafnarfirði.
Eignum verður skilað fullfrágengnum að innan sem utan.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 1 - íbúð 501
Valshlíð 1 - íbúð 501
102 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
312
1226 þ.kr./m2
130.900.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 4
Bílastæði
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Garðatorg 4
Garðatorg 4
210 Garðabær
101 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eskivellir 9B
Skoða eignina Eskivellir 9B
Eskivellir 9B
221 Hafnarfjörður
84.8 m2
Fjölbýlishús
312
765 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1074 þ.kr./m2
66.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin