Fasteignaleitin
Opið hús:22. júní kl 17:00-17:30
Skráð 16. júní 2026

Norðurstígur 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
155.6 m2
8 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
153.500.000 kr.
Fermetraverð
986.504 kr./m2
Fasteignamat
112.150.000 kr.
Brunabótamat
74.000.000 kr.
Mynd af Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Löggiltur fasteignasali
8966020www.trausti.isEignalisti
Garður
Fasteignanúmer
2000526
Landnúmer
100204
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ástand ekki vitað
Raflagnir
ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
ástand ekki vitað
Þak
ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynnir: Björt og falleg 3-4ja herbergja efri hæð og ris með miklum karakter í fallegu tvíbýlishúsi á eftirsóttum stað í gamla vesturbænum í Reykjavík, steinsnar frá gömlu höfninni. Norðurstígur er róleg vistgata en þaðan er gengið inn í fallegt hellulagt port sem var tekið í gegn árið 2020, stemmingin í portinu er eins og þorp í borg og veitir íbúum mikið næði. Íbúðin hefur mikinn sjarma en haldið hefur verið í gamla stílinn þar sem upprunalegar gólffjalir fá að njóta sín sem og pottofnar og á tveim stöðum sést í fallega múrsteinshleðslu hússins, fallegir loftlistar og rósettur prýða loftin. Í íbúðinni eru tvær stofur, rúmgott eldhús/borðstofa og þrjú til fjögur svefnherbergi eru í risinu, ásamt tveim baðherbergjum.
Sjón er sögu ríkari. Í kjallara er 35 fm rými sem núverandi eigandi notaði sem vinnustofu. Á rýminu eru tveir gluggar.


Athugið að neðri hæð hússins er líka til sölu hjá Trausta fasteignasölu og Hallgrími Hólmsteinssyni lgfs. 

Hellulagt bílastæði við hlið hússins fylgir. Íbúðin er skráð 155,6 fm hjá HMS en fleiri fermetrar tilheyra eigninni, m.a. þar sem gólfflötur rishæðarinnar er undir súð á nokkrum stöðum.

Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 8966020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is. 


Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í anddyri og alrými borðstofu, stofu og eldhúss sem eru björt og rúmgóð með nýlegum gólffjölum. Stofurnar eru tvær, sú fremri er í dag nýtt sem vinnuaðstaða og bókastofa en sú innri sem stofa. 
Eldhús og borðstofa eru í einu rými sem er rúmgott og bjart, innréttingin er úr ljósum viði.  Frá eldhúsi er þvottahús og gestasalerni, flísar á gólfi.
Gengið er upp hvítan viðarstiga upp á rishæðina. Herbergin uppi á rishæðinni eru rúmgóð og björt. Í dag eru þrjú svefnherbergi en geta hæglega verið fjögur. 
Baðherbergi er með upphengt salerni, baðkari og sturtuklefa. 
Fataherbergi er á rishæðinni. 
Gólfefni á hluta risins eru upprunalegar viðarfjalir sem gefa íbúðinni mikinn sjarma.
Í kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt 35 fm vinnustofu/geymslu sem tilheyrir íbúðinni. 
Lóðin sem fylgir húsinu er eignarlóð og er skráð 361 fm hjá HMS. Á lóðinni hefur verið komið fyrir hellulögðu bílastæði. 

Einfalt en heillegt gler er í flestum gluggum í íbúðinni.

Þessi eign er einstök og afar sjaldgæft að íbúðir við Norðurstíg komi í sölu sem hafa þennan mikla sjarma og sérstöðu. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnarlundur 7b
Opið hús:18. júní kl 16:15-17:00
Skoða eignina Tjarnarlundur 7b
Tjarnarlundur 7b
600 Akureyri
85.6 m2
Fjölbýlishús
312
583 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106C
Bílskúr
Þórunnarstræti 106C
600 Akureyri
167.1 m2
Fjölbýlishús
514
524 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabakki 8
Skoða eignina Tjarnabakki 8
Tjarnabakki 8
260 Reykjanesbær
96.7 m2
Fjölbýlishús
312
579 þ.kr./m2
56.000.000 kr.
Skoða eignina Skógarbraut 918
Skoða eignina Skógarbraut 918
Skógarbraut 918
262 Reykjanesbær
71.1 m2
Fjölbýlishús
3
660 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin