Sigluvogur 5 er snotur, lítið niðurgrafin, kjallaraíbúð í steinsteyptu tvíbýli í
104 Reykjavík. Um er að ræða 64,3m2 íbúð og 4,1m2 geymslu auk sér þvottahúss í sameign.
Gengið er inn í íbúðina frá norðvestur hlið húss.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 68,4 fm.
Nánar um íbúð:
Anddyri: Frá sameign er gengið í parketlagt anddyri/hol. Þaðan er gengið í aðrar vistarverur íbúðarinnar.
Stofa/Borðstofa: Björt og góð stofa með glugga í tvær áttir.
Eldhús: Með hvítru innréttingu,flísalagt á milli skápa. Gert ráð fyrir uppþvottavél og frístandandi ísskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Nettur vaskaskápur. Baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með innbyggðum fataskáp. Harðparket á gólfi
Þvottahús: Í sameign er þvottahús/geymsla sem þessi eign nýtir ein.
Garður: Umhverfis húsið er stór garður og hefur hvor íbúð í húsinu hluta garðs til sérafnota.
Íbúðin er í yndislegu hverfi með hjálpsömum og vingjarnlegum nágrönnum. Hverfið er fjölskylduvænt og stutt er í allar helstu þjónustur.
- - -
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang fasteignir@procura.is eða í síma 497 7700
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Opinber gjöld við kaup: Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.