Remax kynnir í einkasölu: Glæsileg tveggja herbergja 79,8 fm. íbúð í nýlegu lyftuhúsi við Síðumúla 39, Reykjavík. Íbúðin er 75,9 fm. og skiptist í forstofu, eldhús sem er opið inn til borðstofu- og stofu, skrifstofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla 3,9 fm. er staðsett í sameign og bílastæði fylgir í lokaðri bílgeymslu.
Til eru teikningar sem gera ráð fyrir öðru svefnherbergi, svo möguleiki er að bæta því við.
Innréttingar íbúðar eru sérsmíðaðar frá Formus/Vöke og mikið hefur verið lagt í hönnun hússins jafnt að utan sem innan. Aðalhönnuður hússins er Jakob Líndal á Alark arkitektar. Allar innréttingar eru hannaðar af Hallgrími Friðgeirs innanhúsarkitekt.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánari lýsing:Forstofa er rúmgóð og með góðum fataskápum.
Eldhús er með góðri innréttingu, viðarharðklæðningu frá Egger með mattri áferð. Borðplata í eldhúsi er af gerðinni CHPL (Compact High Pressure Laminate) með stálvask. Allar brautir og lamir eru með ljúflokun frá Blum. Efri skápar eru sprautulakkaðir. Uppþvottavél er innbyggð. Eldhústæki af gerðinni AEG.
Borðstofa- og stofa er mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum. Einnig er auka rými sem hefur verið nýtt sem
skrifstofa. Út stofu er útgengt út á
suðvestur svalir.
Svefnherbergi er bjart og með góðum fataskápum.
Baðherbergi er með góðri innréttingu, sérsmíðað frá Formus/Völke með viðarharðklæðningu frá Egger með mattri áferð. Salerni er upphengt og sturta er með hitastýrðu blöndunartæki. Flísalagður svokallað „walk-in“ sturtuklefi með hertu öryggisgleri. Skápur er fyrir
þvottaaðstöðu. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að hluta. Þeir veggir sem ekki eru flísalagðir eru málaðir með rakaþolnu málningarkerfi. Handklæðaofn er á baðherbergi.
Bílastæði fylgir í lokaðri bílgeymslu, mjög vel staðsett.
Sérgeymsla 3,9 fm. er staðsett í sameign ásamt
hjóla- og vagnageymslu.
Íbúðin er öll nýlega máluð. Fallegt harðparket er á gólfum en flísar frá Álfaborg eru á baðherbergi.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.