Miklaborg kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 212.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er fullbúin og til afhendingar við kaupsamning.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is eða Gabríel Mána Hallsson löggiltan fastasteignsala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is
Virðuleg og vönduð 3ja herbergja rúmgóð horníbúð á 2. hæð. Birt stærð er 103,4 fm þar af 7,4 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.
Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang og beint inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Svefnherbergi með skáp. Baðherbergimeð “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afmörkup aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0046. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is eða Gabríel Mána Hallsson löggiltan fastasteignsala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúðhefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is eða Gabríel Mána Hallsson löggiltan fastasteignsala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is
ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir innan úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 87,7 | 104,9 | ||
102 | 113,6 | 121,9 | ||
102 | 113,6 | 121,9 | ||
102 | 107,3 | 104,9 | ||
102 | 107,3 | 104,9 | ||
102 | 111,1 | 149,9 |