** Vallengi 15 ** EIGNIN VERÐUR SÝND Í EINKASKOÐUNUM SUNNUDAGINN 25 OKT.
BÓKIÐ SKOÐUN solvi@valholl.is eða í s 618-0064 Stór verönd - Heittur pottur - Sérinngangur - Endurnýjaðar innréttingar 2025
Valhöll og Sölvi Þór Sævarsson lgfs, kynna í sölu: Vel skipulagða og töluvert endurnýjaða 88,7 m² 3ja-4ra herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli á vinsælum stað við Vallengi 15 í Grafarvogi.
Sérinngangur og sérmerkt stæði á lóð. Hleðslustöð við sameiginleg stæði á lóð. Stór sólpallur með heitum potti sem snýr í suðvestur. Skjólveggir í kringum sólpall.
- Gott skipulag og nýlegt eldhús.
- Nýjar innihurðar frá Birgisson 2025
- Nýlegt vinylparket með frá Birgisson.
- Nýir fataskápar frá árinu 2025.
Eignin er í heild skráð 88,7 m² skv. Hms.
Fasteignamat 2026 er 65.750.000 kr.- Byggingarár er 1995.Eignin skiptist í: opið anddyri, stofu/eldhús í opnu rými með hurð út á verönd, tvö svefnherbergi og aukaherbergi sem áður var þvottahús ásamt rúmgóðu baðherbergi. Sameiginleg hjólageymsla framan við hús.
Allar nánari uppl. veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064/ solvi@valholl.is Nánari lýsing: Anddyri – Með nýlegum fataskáp sem nær að lofti og vinylparketi á gólfi.
Barnaherbergi – Rúmgott með nýlegum fataskáp frá 2025 og vinylparketi á gólfi.
Aukaherbergi – Ágætlega stórt með loftræstingu og glugga að stofurými sem gefur góða birtu inn herbergið. Áður var þar þvottahús er herbergið er í dag nýtt sem skrifstofa.
Álrými - Stofa og eldhús í opnu stóru sameiginlega rými. Eldhús er með nýlegri, dökkri innréttingu, með tveimur ofnum í góðri vinnuhæð og span helluborði, innfelldur ískápur og uppþvottavél fylgja eigninni. Hurð er úr borðstofu út á stóran sólpall þar er rafmagnspottur undir skyggni og gott rými og skjólveggir í kringum pallinn. Vinylparkett á gólfi.
Baðherbergi – Rúmgott sem hefur verið endurnýjað fyrir nokkrum árum. Flísar á veggjum að lofti og flísar á gólfi. Baðkar með sturtuaðstöðu og glerþili við sturtu. Hvít nýleg innrétting með speglaskáp þar fyrir ofan ásamt aukaskáp gengt innréttingu. Nýlegt upphengt salerni með innbyggðum kassa. Gott rými fyrir þvottavél og þurkara á baðherbergi.
Hjónaherbergi – Á hægri hönd þegar komið er inn í íbúð með nýlegum fataskápum og vinylparketi á gólfi.
Innréttingar og gólfefni: Eldhúsinnrétting er vönduð úr dökku melaminefni með vandaðri borðplötu. Fataskápar eru nýlega endurnýjaðir og ná að lofti. Innihurðar eru nýlegar frá 2025 hvítar yfirfelldar frá Birgisson. Megingólfefni íbúðar er nýlegt frá 2025 vandað vinylparket frá Birgisson. Flísar á baðherbergisgólfi.
Lóð: Séreignarlóð og verönd, nýlegur sólpalur út af stofu/ eldhúsrými – Þar er nýlegur rafmagnspottur undir skyggni/svölum efri hæðar. Grindverk/skjólveggur afmarka séreignarhluta íbúðarinnar. Verönd snýr vel eða í suðvestur og snýr vel gagnvart sólu allan daginn ásamt kvöldsól að potti.
Næsta umhverfi:Vallengi 15 er sérlega vel staðsett, fjölskylduvæn eign á góðum stað í Grafarvogi. Stutt leikskóla, skóla ásamt framhaldsskóla. Göngufæri í flest alla þjónustu í Spöngina og Egilshöll eru skammt undan með ýmsa þjónustu í boði.
Húsið er eitt af þremur húsum sem standa kringum sameiginlegan garð með sameiginlegri leik aðstöðu. Húsið er Permaform einingahús, klætt að utan að stærstum hluta með viðhaldsléttri klæðningu. Hleðslustöð er á bílastæði á lóð við húsið.
Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára.Íbúðin var töluvert endurnýjuð árið 2025:- Lagt nýtt gólfefni: Fiskibeina Vínylparket fra Birgisson í flestöll rými ásamt nýjum gólflistum.
- Íbúðin öll máluð 2025
- Nýjar innihurðar frá Birgisson fyrir öll rými.
- Þvottavél og þurrkari fært inn á baðherbergi.
- Útbúið herbergi þar sem þvottahús var og komið fyrir glugga við loft.
- Rafmagn yfirfarið og bætt við tenglum fyrir framan inngang og á palli.
- Skipt um og settir nýjir ljóskastarar í loft og lýsing bætt.
- Nýjar vinylflísar settar á eldhúsgólf.
- Sólpallur stækkaður.
- Komið fyrir nýju upphengdu og innfelldu salerni á baðherbergi.
- Sett ný handlaug og baðskáp. Nýtt gler við baðkar og nýtt sturtuelement.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is
– eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.