RE/MAX - Brynjar Ingólfsson MSc / lgf. kynnir: Kópavogstún 9, glæsileg, vönduð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með stæði í bílgeymslu fyrir 60 ára og eldri. Frábær staðsetning, fallegt útsýni, stutt er í alla þjónustu og útivistarsvæði. Skoðaðu eignin í 3D hér
- Útsýni yfir Kópavogstún og út á sjó
- Suðursvalir með svalalokun
- Stæði í bílageymslu
- Innréttingar frá GKS, blöndunartæki frá Tengi og flísar úr Álfaborg. Byggingaraðili Jáverk.Íbúðin er 2ja herbergja fyrir endaíbúð og skiptist í anddyri, herbergi, þvottur/bað, eldhús og stofa.
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 2350942 nánar tiltekið eign merkt 0101, birt stærð 75,2 m², þar af geymsla 8,8 m². Bílastæði í bílgeymslu merkt B-16 fylgir eigninni.
Nánari lýsing:
Komið er inn í parket lagt
hol.Eldhúsið er með ljósri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni í vinnuhæð. Góð aðstaða fyrir borðstofuborð.
Stofan er björt með parket á gólfi. Útgengt er út á
hornsvalir með svalalokun.
Baðherbergið er með vandaðri innréttingu, hreinlætistæki frá Tengi. Salernið er upphengt og innbyggt. Innbyggð hitastýrð blöndunartæki eru við sturtu. Góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gólf er flísalagt.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Í sameign fylgir
stæði í bílakjallara,
geymsla og
hjólageymsla. Glæsileg eign fyrir 60 ára og eldri í vel byggðu húsi á vinsælum stað í Kópavogi. Eldhúsinnrétting, fataskápur í herbergi og forstofu eru úr spónlagðri eik með hvítu innvolsi frá GKS innréttingum. Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is