Opið hús:22. feb. kl 12:00-12:45
Skráð 17. feb. 2026

Víkurmói 4 - Íbúð 0101

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
98.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fermetraverð
666.330 kr./m2
Fasteignamat
25.550.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2340702
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Gimli fasteignasala kynnir 3-4ra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og 24,1 fm sólpalli í vönduðu nýju lyftuhúsi. Eignin verður tilbúin til afhendingar við kaupsamning. Íbúðin sem er 98,9 fm að stærð (4,6 fm geymsla innan íbúðar) skilast fullfrágengin án gólfefna á meginrýmum en gólf votrýma verða flísalögð. Gluggar og svalahurðir eru ál/tré frá fyrirtækinu Gluggatækni ehf. Innréttingar og skápar frá HTH. Eldhúsinnréttingin er tvítóna, með dökkri viðaráferð á efri skápum og ljósum neðri skápum. Aðrar innréttingar eru ljósar. Heimilistæki eru frá Ormsson, helluborð, ofn, háfur og innbyggð uppþvottavél. Innihurðir eru með mattri hvítri áferð og eru yfirfelldar. Gólf á baðherbergi er flísalagt og veggir flísalagðir að hluta, flísar eru frá Álfaborg. Á baði er upphengt salerni, sturta, vegleg vaskinnrétting, speglaskápur og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum með staðsteyptum milliplötum. 
Frekari upplýsingar er að finna á söluvefnum http://vikurmoi2-6.is


Nánari upplýsingar veita:
Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is
Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is 
Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is


NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Gengið er af stétt inn í rúmgóða forstofu með glugga.
Gangur: úr forstofu er komið inn á gang.
Geymsla: 4,6 fm geymsla frá gangi 
Hjónaherbergi: með þreföldum fataskápum og gluggum á tvo vegu.
Baðherbergi: flísalagt gólf og að hluta til á veggjum, walk in sturta með glerskilrúmi. Góð baðinnrétting með vaski og speglaskáp fyrir ofan, handklæðaofn og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi #2: frá gangi er eitt svefnherbergi með tvöföldum fataskáp og góðum gluggum.
Hægt er að bæta við 3 herberginu 
Eldhús/stofa:Rúmgott alrými með veglegum gluggum. Eldhúsinnrétting eru tvítóna, með dökkri viðaráferð á efri skápum og ljósum neðri skápum. Heimilistækin frá Ormsson, helluborð, ofn, háfur og innbyggð uppþvottavél. Úr alrými er gengið út á 24,1fm sólpall.
Sameign: hjóla- og vagnageymsla í sameign. 
Lóð: bílastæði verður malbikað með rafbílahleðslustöð.

Víkurmói 4 á Selfossi er vandað fjölbýli á fjórum hæðum með samtals 23 íbúðum. 3-4ra herbergja með sérinngangi. 
Listi yfir sambærilegar eignir til sölu í húsinu: 
Íbúð 101: 98,9 fm. 3-4ra herbergja. Söluverð 65,9 mkr. 
Íbúð 105: 98,9 fm. 3-4ra herbergja. Söluverð 66,9 mkr. 

Íbúð 201: 98,9 fm. 4ra herbergja. Söluverð 64,5 mkr. 
Íbúð 206: 98,9 fm. 3-4ra herbergja. Söluverð 64,9 mkr. 

Íbúð 301: 98,9 fm. 4ra herbergja. Söluverð 64,9 mkr. 
Íbúð 306: 98,9 fm. 3-4ra herbergja. Söluverð 65,5 mkr. 

Íbúð 401: 98,9 fm. 3-4ra herbergja. Söluverð 65,9 mkr. 
Íbúð 406: 98,9 fm. 3-4ra herbergja. Söluverð 66,9 mkr. 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víkurmói 2
Opið hús:24. feb. kl 16:45-17:15
Skoða eignina Víkurmói 2
Víkurmói 2
800 Selfoss
98.9 m2
Fjölbýlishús
43
646 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Ástjörn 13
Skoða eignina Ástjörn 13
Ástjörn 13
800 Selfoss
87.8 m2
Fjölbýlishús
312
735 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Ástjörn 13
Skoða eignina Ástjörn 13
Ástjörn 13
800 Selfoss
94.1 m2
Fjölbýlishús
312
707 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Skoða eignina Ástjörn 13
Skoða eignina Ástjörn 13
Ástjörn 13
800 Selfoss
87.8 m2
Fjölbýlishús
312
724 þ.kr./m2
63.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin