Eignaver 460-6060
Kambastígur 2A - Sauðárkróki - Tvær íbúðir!
Mikið endurnýjuð íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi, ásamt aukaíbúð í kjallara. Íbúðin er skráð 66,9 fm. auka íbúð í kjallara, 70,8 fm., samtals 137,7 fm.. Góðir tekjumöguleikar, en báðar íbúðir eru í útleigu.Nánari lýsing íbúðar á hæð:
Íbúðin skiptist í forstofu, tvö herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Forstofan er með parketi á gólfi.
Hol/Gangur parket á gólfi, skápur.
Svefnherbergin eru tvö, parket á gólfum í herbergjum og fataskápur í einu herbergi.
Baðherbergi er nýlega uppgert, með vinilparketi á gólfi , lítill innrétting, sturta, gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa með parket á gólfi.
Eldhús parket á gólfi, dökk eldhúsinnrétting, gert er ráð fyrir þvottavél og uppþvottavél í innréttingu.
Nánari lýsing íbúðar í kjallara;
Íbúðin skiptist í forstofu, tvö herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Forstofan er með flísum á gólfi og fatahengi.
Svefnherbergin eru tvö, flísar á gólfum í herbergjum og fataskápur í þeim báðum.
Baðherbergið er nýlega uppgert, með flísum á gólfi, lítill innrétting, sturta, gluggi með opnanlegu fagi. Gert er ráð fyrir þvottavél.
Stofa með flísum á gólfi.
Eldhús, flísar á gólfi, viðarlit eldhúsinnrétting.
Annað:
- Frárennslislagnir hússins hafa verið endurnýjaðar út í brunn og settur nýr brunnur við lóðarmörk.
- Þak og rennur hafa verið endurnýjaðar.
- Eignin endurnýjuð að miklu leiti frá 2020, svo sem parket, baðherbergi og fl.
- Gólfhiti í kjallaraíbúð.
- Húsið var málað utan 2025.
- Góðir tekjumöguleikar.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s:
862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s:
898-7011 / arnar@eignaver.is
Begga s:
845-0671 / begga@eignaver.is