Valhöll fasteignasala og Gylfi Þór s. 7704040 löggiltur fasteignasali kynna Dalsbraut 30. Skráð stærð eignar skv. FMR er 106,9 fm. Íbúðin merkt 105.
Um er að ræða rúmgóða og skemmtilega 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með afgirtum sérafnotareit í Dalshverfi í innri Njarðvík.
Stapaskóli leikskóli, íþróttahús, sundlaug og bókasafn aðeins í 300 metra fjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir:
Gylfi Þór löggiltur fasteignasali í síma 7704040 og netfanginu gylfi@valholl.is
Eignin skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi út á hellulagðan afgirtan sérafnotaflöt , sérgeymsla er í sameign.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla er á jarðhæð.
Nánari lýsing eignar
Forstofa: Sérinngangur, rúmgóður fataskápur og parket á gólfi.
Hol: Rúmgott og bjart, parket á gólfi.
Stofa: Stór og björt með gluggum á tvo vegu, parketi á gólfi og útgengi á hellulagðan afgirtan sérafnotaflöt.
Eldhús: Í opnu rými með stofu, stór og falleg ljósgrá innrétting með fínu skápaplássi, bakaraofn í vinnuhæð, parket á gólfi. .
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur innan rýmis.
Barnaherbergi I: Parket á gólfi og fataskápur innan rýmis.
Barnaherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur innan rýmis.
Baðherbergi: Er með ljós grárri innréttingu með hvítum vaski, speglaskáp, vegghengdu salerni, flísalögðum sturtuklefa og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar.
Sérgeymsla: Er 4,5 fermetrar, staðsett á jarðhæð.
Nánari upplýsingar veitir:
Gylfi Þór Gylfason s. 7704040 löggiltur fasteignasali eða á gylfi@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.