Fasteignaleitin
Skráð 28. sept. 2026

Álftaland 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
119.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
836.683 kr./m2
Brunabótamat
62.900.000 kr.
Byggt 1982
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20366284
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Falleg og mikið endurnýjuð endaíbúð á 2. hæð í litlu og snyrtilegu fjölbýlishúsi við Álftaland 7 í Fossvoginum. Eignin er skráð samtals 119,4 fm og þar af er íbúðin sjálf 100,5 fm. Í sameign fylgir eigninni 13,2 fm herbergi auk 5,7 fm sérgeymslu. Íbúðin er einstaklega björt með gluggum á þrjá vegu og fallegu útsýni, meðal annars til suðurs. Yfirbyggðar svalir eru til suðurs út frá stofu og aðrar svalir til vesturs út frá hjónaherbergi. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð, meðal annars eldhús og baðherbergi. Aðeins ein íbúð er á hverri hæð og einungis fimm íbúðir eru í húsinu. Frábær staðsetning í grónu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og fallegar göngu- og hjólaleiðir.

**Sækja söluyfirlit**


Nánari lýsing
Forstofa er með nýlegum tvöföldum fataskáp.
Eldhús hefur verið endurnýjað á fallegan og stílhreinan hátt. Innrétting er rúmgóð með góðu skápaplássi og kvartssteini á borðplötum. Ofn er í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og góður tækjaskápur. Eldhúseyja með spanhelluborði og viftu setur fallegan svip á rýmið og tengir eldhúsið vel við borðstofu og stofu.
Borðstofa og stofa mynda saman bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum og fallegu útsýni. Úr stofu er útgengt á góðar suðursvalir með svalalokun, sem nýtast því vel stóran hluta ársins.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt. Þar er ljós vaskinnrétting með góðu skápaplássi, sturta með glerþili og upphengt salerni. Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta og opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Úr herberginu er útgengt á svalir til vesturs.
Barnaherbergi er einnig rúmgott og bjart með tvöföldum fataskáp og parketi á gólfi.
Í kjallara fylgir íbúðinni 13,2 fm herbergi, skráð sem geymsla, með opnanlegum glugga og nýlegu harðparketi á gólfi. Þar er jafnframt aðgangur að sameiginlegri salernisaðstöðu.
Sérgeymsla eignarinnar er 5,7 fm og er staðsett í sameign.
Þvottahús er sameiginlegt og snyrtilegt og hefur hver íbúð tengi fyrir eigin þvottavél. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Garðurinn er sameiginlegur, gróinn og snyrtilegur. 
Sameiginleg bílastæði eru fyrir framan húsið.

Helstu endurbætur og viðhald síðustu ára
2026: Austurhlið hússins var máluð. 
2025: Múrviðgerðir á austurhlið og skipt um gler að hluta.
2024: Parket íbúðar pússað upp og lakkað og settir nýjir fataskápar að hluta.
2022: Eldhús endurnýjað.
2020-2021: Húsið sprunguviðgert og málað, svalir endurmúraðar og sett ný útiljós á svalir. Skipt var um þrýstijafnara á heitu vatni í sameign. Tréverk endurnýjað í þakkanti.
2018: Baðherbergi gert upp. 

Nánari upplýsingar veita : 
Alfreð Valencia, löggiltur fasteignasali í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is


Athugið að seljandi eignast íbúðina í makaskiptum og hefur því aldrei búið í eigninni. 

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn D1 411
Opið hús:01. okt. kl 11:55-12:45
Orkureiturinn D1 411
108 Reykjavík
106.4 m2
Fjölbýlishús
222
1080 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 401
Opið hús:01. okt. kl 11:55-12:45
Orkureiturinn D1 401
108 Reykjavík
121.7 m2
Fjölbýlishús
312
1108 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 407 Hlutd.lán
Bílastæði
Opið hús:01. okt. kl 17:30-18:00
Hringhamar 35, íb. 407 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
99.9 m2
Fjölbýlishús
413
806 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 309 Hlutd.lán
Opið hús:01. okt. kl 17:30-18:00
Hringhamar 35, íb. 309 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
98 m2
Fjölbýlishús
312
765 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin