Fasteignaleitin
Skráð 18. júní 2025

Kolagata 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
124.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
1.000.000 kr./m2
Fasteignamat
111.600.000 kr.
Brunabótamat
88.750.000 kr.
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2363596
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýbygging frá 2019.
Raflagnir
Nýbygging frá 2019.
Frárennslislagnir
Nýbygging frá 2019.
Gluggar / Gler
Nýbygging frá 2019.
Þak
Nýbygging frá 2019.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Út frá stofu.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Allar innréttingar og tæki eru sérvalin af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild, öll tæki og tæknibúnaður er fyrsta flokks. Íbúðin er máluð í ljósum lit. Hurðar í yfirstærðum eru einnig sprautulakkaðar í sama lit. Ytra efnisval bygginganna er í hæðsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Sameignagangar sérlega glæsilegir og minna á hótel, vandaðar eignir í sérflokki. 

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: nánar tiltekið eign merkt 04-203, birt heildarstærð 124,90 fm, þar af geymsla 6,4 fm. 

Nánari lýsing:
Forstofa: forstofan er með fataskápum með lýsingu að innan og parketi á gólfi.
Baðherbergi: baðherbergið er afar glæsilegt með skápum fyrir neðan vask og speglaskápum fyrir ofan, Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni, upphengdu salerni, "walk in" sturtu með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola og flísum á gólfi og veggjum með marmaramunstri.
Svefnherbergi: svefnherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Eldhús: eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá Noblessa með eyju. Borðplata er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir. Auk þess innfelld kaffivél og innbyggður gufugleypir í eldhúseyju.
Stofa / borðstofa: stofan og borðstofan eru samliggjandi í opnu alrými með eldhúsinu með stórum gluggum í tvær áttir, parketi á gólfi og með útgengi á svalir. 
Sjónvarpsstofa (eða svefnherbergi): sjónvarpsstofan er innaf stofunni með parketi á gólfi. Hún er með glugga og því auðvelt að breyta henni í svefnherbergi (sjá teikningar).
Þvottaherbergi: þvottaherbergið er með góðri innréttingu frá Noblessa og stæði fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski og flísum á gólfi.
Geymsla: 6,6 fm  sérgeymsla í sameign.
Hjóla - vagnageymsla: sameiginleg hjóla - og vagnageymsla í sameign.
Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum.

Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Glæsilegar fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt árið um kring.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/09/202394.700.000 kr.111.000.000 kr.124.9 m2888.710 kr.
11/03/202278.100.000 kr.103.000.000 kr.124.9 m2824.659 kr.
29/05/201976.400.000 kr.290.000.000 kr.361.3 m2802.657 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 28
Bílastæði
Skoða eignina Ásholt 28
Ásholt 28
105 Reykjavík
124.8 m2
Raðhús
413
945 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin