Fasteignaleitin
Opið hús:26. sept. kl 12:30-13:00
Skráð 17. sept. 2026

Flúðasel 76

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
140.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
556.031 kr./m2
Brunabótamat
58.990.000 kr.
Byggt 1976
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20567611
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

*** Sérlega vönduð og glæsilega endurnýjuð 4ra herbergja íbúð  á vinsælum stað í Seljahverfi! ***
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og skemmtilega 4ra herbergja íbúð með stórkostlegu útsýni á efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi við Fífusel 76 í Seljahverfi. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. 

 *** Vinsamlega bókið skoðun hjá Önnu Sigurðardóttur, löggiltum fasteignasala, sími 898-2017 netfang as@heimili.is ***

Eignin skiptist í forstofu og hol, glæsilegt eldhús, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu, auk þess er sér geymsla íbúðar í kjallara ásamt hjólageymslu og sameiginlegu þvottahúsi. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofan er opin með skemmtilegu fatahengi og lítil geymsla með hillum inn af forstofu. Flísar á gólfi
Hol: Innan af forstofu er sjónvarpshol þaðan sem gengið er inn í önnur rými íbúðar, veggfastur sjónvarpsskápur fylgir með ásamt fallegri lýsingu frá Lumex,  gráar flísar á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er glæsilega innréttað með fallegri innréttingu frá HTH sem er sprautulökkuð með hvítu bílalakki, granít á borðum og granít sólbekkur í eldhúsglugga. Innfeldur vaskur og gaseldavél með 6 hellum frá Eirvík og háfur frá Mile. Góður borðkrókur er innst í eldhúsi við stóran glugga sem veitir fallegri birtu inn í rýmið, stórkostlegt útsýni í suður og suðvestur. Ljós í eldhúsi fylgja með. Gráar flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum í suður og útgengi út á skjólsælar og sólríkar suður svalir sem eru klæddar harðviði að hluta og með sérsmíðuðum bekk og skáp fyrir gaskúta.  Veggfastur sjónvarpsskápur í stofu fylgir með ásamt veggljósum frá Lumex. Flísar á gólfi í stofu og á svölum.
Baðherbergi: Sérlega glæsilega endurnýjað baðherbergi með fallegri lýsingu, sturtubaðkari og wc á vegg.  Falleg hvít baðinnrétting með viðarborðplötu og vaski ofaná, stór spegill með lýsingu fyrir ofan innréttingu sem fylgir með. Flísar á gólfi og veggjum. 
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er búið háum og rúmgóðum fataskáp. Rúmgafl og náttborð eru sérsmíðuð og fylgja með ásamt lýsingu frá Lumex. Spónlagt parket á gólfi. 
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með spónlögðu parketi.
Geymsla: Sér geymsla íbúðar með góðum hillum sem fylgja með er í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu. Skrúfuskápur fylgir ekki með.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði með geymsluskápum sem fylgja með í lokari bílageymslu. Einnig er svæði sem eigendur bílageymslu nota til að að þrífa bíla sína.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og var m.a. klætt að utan 2005, skipt um pappa og járn 2014 og nú er verið að ljúka glugga og glerjaskiptum í öllu húsinu.

Einstaklega vel staðsett og skemmtileg eign í vinsælu fjölskylduvænu hverfi þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu, Ölduselsskóla, leikskólana, Seljaborg, Seljakot, Jöklaborg og Hálsaskóg, íþróttasvæði Leiknis, Breiðholtslaug þar sem finna má bæði frábæra innilaug, útilaug, heita potta og vatnsrennibrautir. Í göngufjarlægð frá hverfinu er m.a. Elliðaárdalurinn ein fegursta náttúruperla borgarinnar með fjölbreyttum göngustígum, leiksvæðum og kaffihúsamenningu í Elliðaárstöð.

Sjón er sögu ríkari! Bókaðu einkaskoðun hjá as@heimili.is

Til fróðleiks!
Í miðju Seljahverfi í Breiðholti er allstórt grænt svæði umhverfis manngerða settjörn er ber heitið Seljatjörn. Svæðið í kringum tjörnina er vinsælt útivistarsvæði ekki síst hjá börnum og eldri borgurum en bæði skólar og heimili fyrir aldraða eru í nágrenni svæðisins. Við tjörnina og Seljakirkju má finna listaverk eftir Ásmund Sveinsson, þar á meðal „Móðir mín í kví, kví“ og „Fýkur yfir hæðir“.  Í garðinum er lystihús og vistvæn leiktæki fyrir börn. Svæðið tengist frábærum göngu- og hjólaleiðum og þaðan er t.d. auðvelt að hjóla eða ganga yfir í Heiðmörk, að Vífilsstaðavatni eða Elliðavatni. 





 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7a (301)
1.jpg
Eirhöfði 7a (301)
110 Reykjavík
137.3 m2
Fjölbýlishús
423
1034 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (201)
1.jpg
Eirhöfði 7a (201)
110 Reykjavík
136.4 m2
Fjölbýlishús
413
1004 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7b (702)
Efsta hæð
1.jpg
Eirhöfði 7b (702)
110 Reykjavík
131.1 m2
Fjölbýlishús
423
1067 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Gefjunarbrunnur 11
Opið hús:22. sept. kl 18:00-18:30
Gefjunarbrunnur 11
113 Reykjavík
132.6 m2
Parhús
43
867 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin