Remax kynnir í einkasölu: Iðnaðarbil 114,4 ferm. í vönduðu stálgrindarhúsi að Borgahellu 7D. Samtals eru 14 iðnaðarbil í tveimur húsum í þremur stærðum, 114,4 ferm. 120 ferm. og 135. ferm. Lóð verður afgirt og með rafdrifnu hliði, öryggismyndavélar verða settar upp, lóð verður malbikuð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit strax!Pantaðu skoðun hjá Hauki í s: 699-2900 eða í tölvupósti á haukur@remax.is eða hjá Sylvíu í s: 820-8081 eða í tölvupósti á sylvia@remax.isNánari lýsing: Bilin verða afhent fullbúin með Epoxy á gólfi, led lýsingu í lofti með birtustilli. 3ja fasa rafmagn er í bilinu.
Eldhús með svartri innréttingu (mött innrétting úr IKEA).
Baðherbergi með rúmgóðum svörtum sturtuklefa, salerni og vaskur.
Inngangur, tvær inngönguhurðar eru í bilið í sinn hvorum enda.
Innkeyrsluhurð frá Hörmann 3,25 m. á hæð og 3,25 m. á breidd, rafdrifinn hurðaopnun.
Skolvaskur í sal með heitu og köldu vatni.
Lofthæð í húsinu er allt að 6 m. sem býður upp á möguleika á millilofti.
Milliloft, framleiðandi húsanna er með milliloft tilbúin í aukapakka sem hægt er að kaupa, stærð millilofta er 40 ferm. og 45 ferm. í endabilum. Gluggar með opnanlegum fögum eru í þeirri hæð sem nýtist millilofti.
Sérafnotareitur fylgir hverju bili. Olíuskilja.
Byggingarlýsing:Stálgrindarhús á einni hæð, það verða 14 sjálfstæðar einingar (óráðstafað atvinnuhúsnæði) í tveimur matshlutum/byggingum mhl 01 og 02 byggingarnar verða klæddar viðurkenndum yleiningum, innveggir eru gipsplötuveggir á blikkstoðum með steinullareinangrun eða yleiningar með steinullareinangrun eftir því sem við á.
Lagnaleiðir eru í út og innveggjum ásamt gólfplötum þegar við á.
Þak byggingar verður uppbyggt af kassettu þakeiningum sem koma ofaná stálbita, gluggalaus rými loftræst og niðurföll í votrýmum (rafræn loftræsting).
Upphitun: ofnakerfi er í byggingunum.
Gluggar og hurðar: Frá þýska fyrirtækinu Schuko, tvöfalt K gler, rammar í dökkgráum lit.
Útlit: framhlið byggingar ljós á litin og aðrir hlutar byggingar dökkgráir.
Sorp er í afmörkuðum sorpskýlum, ekki er gert ráð fyrir förgun hættulegra efna en almenn sorpflokkun. Frágangur á lóðarmörkum í samráði við aðliggjandi lóðarhafa. Húsnæðinu er skipt niður í 14 eignarhluta, hver eignarhluti er sjálfstæð brunaeining.
Bílastæði: er á lóðinni þ.a. tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða. eitt við hverja einingu/eignahluta og 2 fyrir hreyfihamlaða.
Skipulag: í öllum rýmum er baðherbergi með aðgengi fyrir alla, kaffistofa/starfsmannaaðstaða, munaskápar og skolvaskur.
Inntaksklefi: sameiginlegur inntaksklefi er í hvoru húsi.
Lóð: innkeyrsla og lóð malbikuð og með halla að niðurföllum. Innkeyrsla er færð til og verður við miðja lóð.
Burðarvirki: sökklar eru staðsteyptir, yleiningar veggja og þaks með burð frá stálbitum, gólfplata staðsteypt.
Útveggir: yleiningar 150 mm settar upp og tengdar saman að forskrift framleiðanda.
Þak: yleiningar 200 mm settar upp og tengdar saman að forskrift framleiðanda.
Innveggir: yleiningar 120mm settar upp og tengdar saman að forskrift framleiðanda eða gipsplötuveggir á blikkstoðum með steinullareinangrun: sjá orkuramma.
Yfirborð útveggja: málmklæðning.
Skipulagsgjald:Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.
Virðisaukakvöð: það er virðisaukakvöð á eigninni sem kaupandi yfirtekur.
Allar nánari upplýsingar veita:
Haukur Hauksson lögg. fasteignasali hjá RE/MAX í s: 699-2900 eða á haukur@remax.is
Sylvía Guðrún Waltersdóttir hjá RE/MAX í s: 820-8081 eða á sylvia@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.