Lóð með teikningum undir einbýlishús við Þurárhraun 23 í Þorlákshöfn. Framkvæmdir hafnar á lóðinni sem stendur inn í botnlanga og er með gott útsýni til bæði norðurs, vesturs og austurs. * Lóðin er alls 899,0 m² að stærð og teikningar gera ráð fyrir 199,5 m² fasteign.
* Búið er að grafa grunninn og gera púða
* Teikningar tilbúnar, arkitekta og verkfræðiteikningar, geta fylgt með. Hægt er að breyta teikningum.
* Allir gluggar og hurðar geta fylgt meðNánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir lgf. í síma 849-1921 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurSamkvæmt teikningum skiptist eignin í anddyri, gestasalerni, hol, stofu / borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsluloft og bílskúr.Gengið er inn í
anddyri.
Gestasalerni er inn af forstofu.
Stofa / borðstofa og
eldhús eru í opnu, rúmgóðu rými, Útgengt út í garð.
Svefnherbergin eru 4.
Baðherbergi er með útgengi út í garð.
Þvottahús tengir íbúðarrými og bílskúr.
Bílskúrinn er rúmgóður skráður 56,70 m2. Þar fyrir innan er geymsla með glugga og útgengt út í garð.
Fyrir framan bílskúrinn eru tvö
bílastæði.
Geymsluloft er yfir húsinu.
Eignin er á góðum stað í Þorlákshöfn, stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði og alla helsta þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.