LYNGBORGIR 3 ER SELD EN EINNIG ER HÆGT AÐ FESTA KAUP Á LÓÐ 15 OG 17
!!!!!! LYNGBORGIR 3, 15 & 17 ERU ALLAR SELDAR!!!!
Domusnova og Haukur Páll Ægisson, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu, Lyngborgir 3, 805 Selfoss. Sumarhúsalóðin er 7763 fm eignalóð sem staðsett er skammt frá Borg í Grímsnesi.
Lýsing lóðar
Deiliskipulag er í samræmi við aðalskipulag Grímsnes og Grafningshrepps.
Svæðið flatlent, mói, tún og í um 80 m yfir sjávarmáli.
Samkvæmt deiliskipulagi má byggja 50-200fm hús á svæðinu.Komið er rafmagn og kalt vatn við aðalveginn.
Vegur liggur að lóðamörkum.
Stutt er í flesta þjónustu á svæðinu. Verslun og sundlaug á Borg, veitingahús á Minni-Borg,
einnig eru golfvellir í Kiðjabergi og Öndverðarnesi. Aðrir þekktir staðir skammt frá eru til að mynda Laugarvatn, Reykholt,
Geysir, Gullfoss, Þingvellir og Selfoss.
Einnig er hægt að festa kaup á tveimur 68fm bjálkahúsum sem staðsett eru í gám á svæðinu.
Fast verð 9.500.000 fyrir húsin tvö og gáminn. Nánari upplýsingar veita:Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / hp@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.