Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9, þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur Norðurlanda. Íbúðirnar eru með samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði.
Glæsileg 124,4fm fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í nýju 24 íbúða fjölbýlishúsi ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 17,7fm. Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, 2 baðherbergi, 3 svefnherbergi, geymslu og stæði nr B21 í bílageymslu. Ásvellir 7 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.
Sjá nánar ÁSVELLIR
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is NÁNARI LÝSING : Forstofa góðum fataskáp frá GKS.
Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Þvottahús / Búr er innaf eldhús með innrétting frá GKS.
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með útgengi út á svalir.
Hjónaherbergi með baðherbergi og fataherbergi innaf, skápar frá GKS.
2 Svefnherbergi með skápum frá GKS.
Baðherbergi með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Í kjallara er stæði nr B21 í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur.
Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð. Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki.
Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins. Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d. gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús.
2. Frágangur íbúða2.1 Veggir Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikursteinum, grófpússaðir og sandspartlaðir. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir með Sunstone Freya 60x60 cm flísum frá Parka. Veggir í þvottahúsum eru málaðir með Svansvottaðri votrýmismálningu. Aðrir veggir eru málaðir með Svansvottaðri málningu
2.2 Gólf Íbúðir verða afhentar Sunstone Freya 60x60 cm flísum frá Parka á gólfi á baðherbergjum og þvottahúsum. Önnur gólf eru afhent án gólfefna.
2.3 Loft Steypt loft eru slípuð, sandspörtluð og máluð með Svansvottaðri málningu. Loft á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með Svansvottaðri votrýmismálningu. Í loftum kunna að vera stokkar til að hylja loftræsilagnir.
2.4 Hurðir Inngangshurðir íbúða eru EI30-CS yfirfelldar spónlagðar hurðir. Hurðir innan íbúða eru sléttar yfirfelldar í hvítum lit. Rennihurðir eru í hvítum lit. Allar hurðir innan íbúða eru keyptar í Parka. 1
2.5 Rafmagn og lýsing Ásvellir 3-9 SKILALÝSING Raflagnir eru fullfrágengnar samkvæmt teikningum. Tenglar og rofar í íbúðum eru að tegundinni Merten háglans fyrir utan tengla og rofa í eldhúsi þar eru þeir svartir af gerð ION V1/J1. Innan íbúða eru LED loftljós í baðherbergjum, þvottahúsum og innfelld LED ljós í loftum á völdum stöðum. Íbúðir eru búnar mynddyrasíma af gerð bticino. Ljós á völdum stöðum eru búin dimmingu með Plejd-snjallkubbum, hægt er að stjórna þeim ljósum með símanum ef sótt er Plejd-appið í snjallsíma. Kóði til að tengjast kerfinu er í rafmagnstöflu.
2.6 Eldhús Eldhúsinnréttingar koma frá Trésmiðju GKS. Skápar eru úr slitsterku melaminefni í viðar útliti í bland við einlitt melaminefni. Borðplötur eru plastlagðar í gráum lit. Allar lamir og skúffubrautir eru með mjúklokun. Skápar eru almennt með höldum fyrir utan efri skápa sem eru með þrýstiopnun. Lýsing er undir efri skápum, sorpflokkunarkerfi er í vaskaskáp og hnífaparabakki í skúffu. Helluborð kemur frá BORA og er keypt frá Trésmiðju GKS, önnur heimilistæki eru frá AEG og eru keypt hjá Ormsson. Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Blöndunartæki eru frá Nobili og vaskur er frá Schock en bæði er keypt frá Trésmiðju GKS.
2.7 Fataskápar Fataskápar koma frá Trésmiðju GKS og eru úr einlitu melaminefni. Lamir og skúffubrautir eru með mjúklokun.
2.8 Baðherbergi Baðinnréttingar koma frá Trésmiðju GKS. Neðri skápur er skúffuskápur, lagður með einlitu melaminefni. Efri skápur er speglaskápur með lýsingu fyrir ofan. Vaskur er hvítur frá Alape með easy-clean húð sem heldur óhreinindum frá og er auðvelt að þrífa, blöndunartæki er krómlitað frá Mora. Blöndunartæki í sturtu eru krómlituð frá Hansa, handsturtuhaus er að tegundinni SKINNY frá Almar og sturtuhaus er krómlitaður að tegundinni OKI frá Bossini. Klósettskál er hvít að tegundinni Selnova frá Geberit með hvítri klósettsetu með hæglokun.
2.9 Þvottahús Innréttingar í þvottahúsum koma frá Trésmiðju GKS. Fyrir neðan þvottavél og þurrkara eru skúffuskápar og balagrind fyrir innan. Í efri skápi er loftræstisamstæða íbúðarinnar.
2.10 Hitakerfi Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita, auk þess er handklæðaofn á baðherbergjum innan íbúða. Sameignir eru kynntar með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita er stýrt með þráðlausum hitanemum á vegg rýmis, gæta skal að skipta þarf um rafhlöður í þráðlausum hitanemum öðru hvoru. Ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða vatnshitastýrðir lokar á því. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir fylgja frágegnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
2.11 Loftræsing Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð, nauðsynlegt er að skipta um síu reglulega skv. leiðbeiningum framleiðanda. Hefðbundið loftræsikerfi er í geymslum og bílakjallara.
3.Frágangur utanhúss3.1 Klæðning Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð.
2 3.2 Þak Ásvellir 3-9 SKILALÝSING Þak er steypt plata og ofan á hana er uppstólað timburþak, vatnsvarið með ásoðnum pappa og klætt með báruklæðningu í lit samkvæmt forskrift arkitekts. 3.3 Svalir Svalir eru staðsteyptar og klæddar með Lunawood pallaefni. Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og Gler. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð. Möguleiki er á svalalokun samkvæmt aðalteikningum arkitekts. Glerlokun yrði þá frá Ál og Gler. sem kaupendur geta keypt sjálfir frá þeim eftir á. Sjá nánar á aðalteikningum arkitekts.
3.4 Gluggar og útihurðir Gluggar eru álklæddir timburgluggar settir í eftir á. Svalahurðir eru álklæddar málaðar tréhurðir settar í eftir á. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin og allar úti- og svalahurðir eru að fullu frágengnar með þéttiköntum.
3.5 Lóð Lóð er frágengin með hellulögn, gróðurbeðum og grassvæðum í bland í samræmi við teikningar landlagshönnuðar.
4. Frágangur sameignar4.1 Íbúðargangar, lyftu- og stigahús Steyptir innveggir eru múraðir eða slípaðir, spartlaðir og málaðir. Léttir innveggir í sameignum eru annað hvort hlaðnir úr vikursteinum, grófpússaðir og málaðir eða reistir úr harðgipsi, spartlaðir og málaðir. Póstkassar eru í anddyri hvers stigagangs fyrir viðkomandi íbúð. Í hverri sameign eru gólf á inngangshæð flísalögð ásamt stiga og milli palli niður í kjallara og göngu leið út í bílakjallara. Aðrir stigar og milli pallar eru teppalagðir ásamt íbúðagöngum á öðrum hæðum. Gólf á geymslugöngum eru máluð.
4.2 Hurðir Anddyris hurð ásamt inngangshurð inn í stigaganga eru úr áli frá Gluggatækni. Aðrar hurðir í sameignum eru yfirfelldar timburhurðir keyptar í Parka og stálhurðir einnig keyptar í Parka. Sjálfvirkur opnunarbúnaður er á hurðum í anddyri, inngangshurð að stigagangi og hurðum í brunstúkum sem liggja að bílakjallara
4.3 Lyfta Lyftur í húsinu eru að gerðinni Monospace 300DX frá KONE. Bak og hliðar veggir eru hvítir og framveggur burstað ryðfrítt stál. Loft er hvítt með beinni LED lýsingu. Á öðrum hliðarveggnum er handlisti með bogadregnum endum og á bakvegg er spegill.
4.4 Bílastæði Á lóð eru 60 bílastæði og eru þar af 4 merkt hreyfihömluðum.
4.5 Bílageymsla Bílageymsla er í kjallara hússins með máluðu lofti og plötuklæðningu þar sem við á. Útveggir verða einangraðir að utan eða innanverðu eftir því sem við á. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgja frágengin í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð í bílageymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði. Hjóla- og vagnageymslur Hjóla og vagnageymslur eru í kjallara í sameiginlegum hluta húsanna.
4.7 Djúpgámar Tvö djúpgámasett fyrir endurvinnslu og sorp eru staðsett á lóðinni, annarsvegar við Ásvelli 5 og hins vegar við Ásvelli 11. Samtals tíu gámar. 5.
6. Áætlaður afhendingartími Íbúðir á Ásvöllum 3-19 verða afhentar í áföngum á tímabilinu september 2026 – ágúst 2027 Ásvellir 3, 7 og 9 verða afhent september 2026 Ásvellir 5 verður afhent í nóvember 2026. Bílageymsla og lóð fyrir nyrðri hluta Ásvalla verður afhent í september 2026 Bílageymsla og lóð fyrir syðri hluta Ásvalla verður afhent vor 2027. Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda hefur áhrif á afhendingartíma til seinkunnar. Allar breytingar sem kaupendur hyggjast gera þarf að gera í samráði við verkefnastjóra skriflega og mun hann meta hvort þær séu framkvæmanlegar. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur fyrir því að bæði söluaðilar efnis ásamt verkefnastjóra byggingarfélagsins séu upplýstir um allar breytingar með pósti. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur vegna viðbótarkostnaðar sem getur myndast hjá byggingarfélaginu vegna þessara breytinga. Byggingarfélagið tekur ekki á sig ábyrgð vegna skemmda sem kunna að verða á búnaði eða efnum sem íbúðareigandi hefur sjálfur sett inn í íbúðina áður en formleg afhending hefur farið fram.