Fasteignaleitin
Skráð 2. júlí 2026

Koðrabúðir 11

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
71.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
701.828 kr./m2
Brunabótamat
43.900.000 kr.
Byggt 2006
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22950473
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða virkilega fallegt 71,1 fm sumarhús byggt árið 2006 á fallegum útsýnisstað í grónu landi við Tungufljót, Biskupstungum í Bláskógabyggð. Húsið stendur á 4.074 fm eignarlóð. Að utan er húsið klætt með liggjandi klæðningu. Þakið og rennurnar voru endurnýjaðar árið 2025 og komið bárujárn. Stór verönd / pallur með lýsingu kringum húsið. Rafmagnskynding er í húsinu og stendur húsið á púðum. Nýlegur rafmagnspottur - geymsluskúr á palli. 

Að innan skiptist húsið í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Andspænis inngangi er svefnherbergi I með innbyggðum kojum. Parketlagður gangur með rúmgóðum skáp þar sem er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þar á móti er svefnherbergi II með tvíbreiðu rúmi. Rúmgott svefnherbergi III er við enda gangsins. Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og útgangi út á pall. Stofa og eldhús í opnu rými (upptekið loft) með parketi á gólfi og frá þessu rými er unnt að ganga út á pallinn. Falleg eldhúsinnrétting með spanhelluborði ásamt innbyggðum Siemens ísskáp og uppþvottavél.
Gólfefni bústaðar: parket og flísar.

Bústaðurinn hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og er einstaklega vel staðsettur með frábæru útsýni í landi Heiðar í Bláskógabyggð þar sem ýmsa þjónustu er að finna. Húsið er í um það bil 10 mínútna fjarlægð frá Geysissvæðinu, Laugarvatni, Reykholti og Flúðum þar sem jafnframt er mikla þjónustu og afþreyingu að finna, sundlaugar, veitingahús og verslanir.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is

Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hofsvík 2
3D Sýn
Heitur pottur
Skoða eignina Hofsvík 2
Hofsvík 2
805 Selfoss
73.8 m2
Sumarhús
322
541 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hofsvík 7
3D Sýn
Heitur pottur
Skoða eignina Hofsvík 7
Hofsvík 7
805 Selfoss
73.8 m2
Sumarhús
321
541 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Eyrar 6
Skoða eignina Eyrar 6
Eyrar 6
806 Selfoss
92.1 m2
Sumarhús
413
781 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsstígur 5
Skoða eignina Þórsstígur 5
Þórsstígur 5
805 Selfoss
92.1 m2
Sumarhús
423
846 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin