Fasteignaleitin
Skráð 31. maí 2023
Deila eign
Deila

Selvogsbraut 11a

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
202.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
394.568 kr./m2
Fasteignamat
64.250.000 kr.
Brunabótamat
87.400.000 kr.
Byggt 1992
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
F2212743
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
2
Hæðar í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Síðan húsið var byggt
Raflagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Svalir
Sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Selvogsbraut 11a, Þorlákshöfn.  Einstaklega skemmtilegt og fjölskylduvænt endaraðhús á tveimur hæðum með 4 mjög stórum svefnherbergjum, bílskúr og uppgrónum, stórum garði með stórum sólpalli og heitum potti.  Auðvelt er að bæta við 5. svefnherberginu !

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánai upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **


Húsið telur:
Jarðhæð:
*  Flísalagt anddyri.
Stóra stofu.  
Úr stofunni er utangengt á sólpall sem snýr í suður/vestur þannig að sólar nýtur þar frá hádegi og fram á kvöld.
Fallegt eldhús með viðarinnréttingu og flísum á gólfi.  
Mjög stórt svefnherbergi með fataskáp.
Lítið, nýupptekið wc með skáp undir vask, flísum og wc. 
*  Þvottahús með flísum á gólfi.
* Stigi upp á efri hæðina liggur úr holi.  Stiginn er stór og þægilegur yfirferðar.
Efri hæð:
*  Efri hæðin er mjög björt, hátt er til lofts og góðir þakgluggar sem hleypa fallegri birtu inn !
3 mjög stór svefnherbergi.
* Stórt sjónvarpshol.  Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta sjónvarpsholinu í fimmta svefnherbergið !
* Rúmgott, nýupptekið baðherbergi með dökkri innréttingu, hornbaðkari, inngengri sturtu með glerþili og upphengdu wc.  Flísar á gólfi og hluta af veggjum.
** Á öllum gólfum er nýtt harðparket.

Bílskúrinn er fullfrágenginn. 
*  Geymsla er í enda bílskúrsins.
*  
Bílaplan er  með möl.   

* Garðurinn er uppgróinn og með stórum sólpalli með skjólveggjum.  Í garðinum er búið að útbúa skýli (varanlegur frágangur á þaki skýlis er eftir). 
Undir skýlinu er heitur pottur og grillaðstaða. 
Svæði er tilbúið fyrir niðurgrafið trampolín.  
* Köld geymsla er í garðinum.

** Sjón er sögu ríkari!


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði 

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1992
42.5 m2
Fasteignanúmer
2212744
Númer hæðar
1
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.750.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Mynd af Guðbjörg Heimisdóttir
Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Pálsbúð 26
Bílskúr
Skoða eignina Pálsbúð 26
Pálsbúð 26
815 Þorlákshöfn
200 m2
Einbýlishús
524
413 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Lýsuberg 10
Bílskúr
Skoða eignina Lýsuberg 10
Lýsuberg 10
815 Þorlákshöfn
192.6 m2
Einbýlishús
513
399 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngberg 15
Bílskúr
Skoða eignina Lyngberg 15
Lyngberg 15
815 Þorlákshöfn
187.5 m2
Einbýlishús
614
410 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 15
Bílskúr
Skoða eignina Ísleifsbúð 15
Ísleifsbúð 15
815 Þorlákshöfn
157.2 m2
Raðhús
413
496 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache