Fasteignaleitin
Opið hús:01. des. kl 17:00-17:30
Skráð 30. nóv. 2021

Ásvallagata 59

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
54.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
1.058.501 kr./m2
Fasteignamat
53.550.000 kr.
Brunabótamat
29.500.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Húsið er eftir

Húsameistari ríkisins.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1932
Jarðhæð af 2
Garður
Baðkar
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2002498
Landnúmer
194162
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Yfirfarið/málað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Ásvallagata 59 í Reykjavík - Afar falleg og sjarmerandi 2ja herb. á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur - frábært skipulag og stór geymsla.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna afar sjarmerandi, bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 1. hæð (gengið upp nokkrar tröppur) í steyptu fjölbýlishúsi við Ásvallagötu 59 í Reykjavík. Einungis fjórar íbúðir í stigagangi. Íbúðin er alls 54,7 fermetrar að stærð og með gluggum á tvo vegu. Rúmgóð 11,4 fermetra geymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Sameign er snyrtileg með þvottaherbergi og þurrkherbergi. Íbúðinni fylgir góð Siemens þvottavél.

Fasteignasali vekur athygli á því að innbú á fyrstu mynd er sviðsett með tölvutækni þar sem eignin er tóm og er til þess fallið að veita áhugasömum aðilum hugmyndir um nýtingu eignarinnar.


Um er að ræða sögufræg hús (Verkamannabústaðirnir við Hringbraut) sem afmarka stóra lóð frá Ásvallagötu, Hringbraut, Bræðraborgarstíg og Hofsvallagötu. Innan þessara húsa er stór og falleg lóð með fallegum gróðri, bekkjum og leiktækjum, sem Reykjavíkurborg heldur við og er opin öllum á daginn en á kvöldin er garðinum læst með hliði. Húsaþyrpingin er teiknuð af Guðjóni Samúelssyni arkitekt. Mjög sterkt og öflugt húsfélag er starfandi í húsunum sem hefur hugsað vel um viðhald í gegnum árin.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Vesturbænum þaðan sem stutt er í alla versluna og þjónustu, veitingastaði og aðra menningu/afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Leik- og grunnskólar í göngufjarlægð ásamt sundlaug og íþróttastarf. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Með dúk á gólfi.
Stofa: Með dúk á gólfi og glugga til norðausturs.
Svefnherbergi: Með dúk á gólfi, skápum og glugga til suðvesturs.
Eldhús: Með dúk á gólfi, málaðri viðar eldhúsinnréttingu, eldavél, borðkrók og glugga til suðvesturs.
Baðherbergi: Með dúk á gólfi, baðkari með sturtutækjum, salerni, vask og glugga til norðvesturs.

Geymsla: Er staðsett í kjallara og er 11,4 fermetrar að stærð með glugga.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt í kjallara hússins. Sér tenglar fyrir hverja íbúð. Nokkurra ára Siemens þvottavél fylgir íbúð. Útgengi á baklóð/garð hússins.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt í kjallara hússins. Stórt með gluggum til suðurs og norðurs ásamt þvottasnúrum. 

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/01/202235.550.000 kr.42.500.000 kr.54.7 m2776.965 kr.Já
23/03/202032.300.000 kr.31.000.000 kr.54.7 m2566.727 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 302
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (19).jpg
Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 302
101 Reykjavík
64,1 m2
Fjölbýlishús
21
1168 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 402
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (18).jpg
Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 402
101 Reykjavík
64,2 m2
Fjölbýlishús
211
1182 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 309
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (20).jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 309
101 Reykjavík
69,7 m2
Fjölbýlishús
21
1118 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 43 (Vesturvin 1) íb 305
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (21).jpg
Mýrargata 43 (Vesturvin 1) íb 305
101 Reykjavík
72 m2
Fjölbýlishús
211
1088 þ.kr./m2
78.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin