Croisette Real Estate Partner kynnir:
TIL SÖLU gott iðnaðarhúsnæði að Lækjarflóa, Akranesi.
Um er að ræða um 1000fm húsnæði sem verður hægt að skipta niður í smærri einingar, allt frá 100fm (með 40fm millilofti) til um 1000fm. Skiptingin á núverandi teikningu sýnir 4 100fm rými, 2 130fm rými og 1 260fm.
Húsið er stálgrindarhús með ileiningum (150mm). Gert er ráð fyrir að milliveggir séu úr gifsi en kaupandi getur haft áhrif á endanlega skiptingu rýma. Mesta hæð um 9m (7m-9m) í lagerrými.
Í minni einingunum (100fm) er gert ráð fyrir lagerrými/iðnaðarrými, salerni og tækniherbergi en á millilofti er gert ráð fyrir skrifstofu og eldhúsi.
Húsið verður staðsett í nýju iðnaðarhverfi á Akranesi steinsnar frá höfuðborginni.
Verklok og afhending áætluð á 2. ársfjórðungi 2023
Kaupandi yfirtekur áhvílandi virðisaukaskattskvöð
Nánari upplýsingar veittar í síma 569 9090 og allir@croisette.is
Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, david@croisette.is S: 766-6633
Ástþór Helgason, astthor@croisette.is S: 898-1005
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.