Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2024
Deila eign
Deila

Víðihlíð 1 - 203

Nýbygging • FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-604
109.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.600.000 kr.
Fermetraverð
719.122 kr./m2
Fasteignamat
55.850.000 kr.
Brunabótamat
61.050.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2527533
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir til vesturs
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Byggð 464-9955

Víðihlíð 1 - 101  **Nýbygging**
 
Vönduð og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð með þvottahúsi á efri hæð í suðurenda í sex íbúða fjölbýlishúsi í Hörgársveit. Fallegt útsýni er úr eigninni og upptekin loft að hluta. Eignin er samtals 109,3 fm. og auk þess fylgir íbúðinni sameiginleg hjóla og vagnageymsla í lagnarými í stigahúsi.

**Eignin er laus til afhendingar**


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Forstofa er  með ljósgráum flísum á gólfi og hvítum þreföldum fataskáp. 
Þvottahús er inn af forstofu. Stæði er fyrir þvottavél og þurrkara og ljós borðplata. Þaðan er einnig aðgengilegt um fellistiga á gott geymsluloft. 
Svefnherbergi er við hlið forstofu, þar er parket á gólfi og tvöföldum hvítum fataskáp.
Stofa og eldhús er í opnu björtu rými. Þar er parket á gólfi, innfelld lýsing og upptekin loft. Úr stofu er útgengt út á steyptar yfirbyggðar svalir til vesturs. Eldhús, innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá GKS. Eldhúsinnrétting er úr hnotu og hvít með mjúklokunarbúnaði. Bekkplata er úr plasti í hvítu marmaralíki. Veggplata er á milli bekkplötu og efri skápa, hún er eins á litinn og bekkplata.
Eldhúsi er skilað með fullbúnum heimilistækjum, span-helluborði (AEG), ofni (AEG), ísskáp með frysti
(AEG), viftu með kolasíu frá Elica (lofti er blásið út úr íbúðum frá eldavél) og uppþvottavél (AEG).

Hjónaherbergi er með parket á gólfi, fjórföldum hvítum skáp og innfelldri lýsingu. 
Þriðja svefnherbergið er einnig með parket á gólfi og tvöföldum skáp.
Baðherbergi er með ljósgráar flísar á gólfi og gráar flísar á veggjum og innfelldri lýsingu. Sturtugler er við sturtu, vifta, opnanlegt fag, upphengt salerni og góð innrétting í kringum vask með speglaskáp, sömu gerðar og í eldhúsi.  

Annað: 
-Vandaðar innréttingar frá GKS
-Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgir með við sölu
-Parket er eikar harðparket
-Innihurðar eru hvítar og hurðarhúnar úr burstuðu stáli
-Aukin lofthæð
-Húsið er í flokki B fyrir hljóðvist sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga
-Þrefalt gler í öllum gluggum
-Aukin lofthæð
-Viðhaldsfrí utanhússklæðning
-10,9 m² steypt verönd

Sólpallar við hús eru staðsteyptir og ná tæpa tvo metra út frá húsi. Lengd palla er um 5.7 metrar. Handrið, galvaniseruð koma á kantinn á pallinum.

Malbikuð bílastæði eru fyrir framan húsið. Snjóbræðsla með frostlegi (lokað kerfi) er í gangstéttum og bílastæði fyrir hreyfihamlaða.

Frekari upplýsingar úr skilalýsingu:
Innveggir eru flestir staðsteyptir, þeir veggir sem eru ekki steyptir eru gerðir úr blikk-grind og klæddir með plötum í flokki 1. Innveggir uppfylla lágmarkskröfur fyrir lofthljóðeinangrun innbyrðis á milli herbergja innan íbúðareiningar samkvæmt ÍST 45:2016
Gluggar eru ál/trégluggar hvítir að innan, dökk gráir að utan. Öryggisgler er í hurðum og þrefalt verksmiðjugler í gluggum.
Útveggir eru 180mm járnbentir og staðsteyptir. Veggir eru einangraði að utan með steinull og einangrun er í flokki A1 samkvæmt EN13162. Klætt er utan á útveggi með tvöföldu álkerfi og með öndunardúk (TRASPIR 115 eða sambærilegt). Ysta byrði útveggja (klæðning) er 8 mm Swisspearl Pantina sementplata. Veggir á milli íbúða eru 300mm járnbentir og staðsteyptir með brunaþol REI-90. Þeir uppfylla hljóðvistarflokk B samkvæmt staðlinum ÍST 45 sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga.
Þakið er timburþak/sperruþak (A-þak),  klætt og varið með BMI Icopal tjörudúk
Útsogs/ferskloftkerfi. Vélrænt útsog er úr baðherbergi og geymslu. Útsog íbúðar er tryggt með þakblásarar með öflugum blæstri.
Hitalagnir eru í gólfi íbúðar (gólfhitakerfi) og er stýrt með stafrænum-hitanemum í hverju rými. Handklæðaofn er á baðherbergi.
Raflögn er fullfrágengin. Í lofti í stofu, eldhúsi, hjónaherbergi og baði eru innfelld led-ljós, sem fylgja með íbúðinni. Hefðbundinn ljós eru í öðrum svefnherbergjum sem og inni geymslu og inntaksrými (utan íbúðar). Önnur ljós fylgja ekki íbúð.
Ídráttarrör og staurar eru fyrir möglega hleðslustöð. Útilýsing er við inngang íbúðar og svalir.
 
Lóð verður jöfnuð og tyrft en er afhent án trjágróðurs á lóð. Stéttar á jarðhæð eru hellulagðar.
Staðsteyptar sorptunnugeymslur eru staðsettar nærri götu.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist 0,3% af brunabótamati eignar.

Byggingarverktaki: Hamrar Byggingarfélag ehf. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarhlíð 10
Skoða eignina Skógarhlíð 10
Skógarhlíð 10
604 Akureyri
146 m2
Fjölbýlishús
414
532 þ.kr./m2
77.600.000 kr.
Skoða eignina Víðihlíð 1 íbúð 203
Víðihlíð 1 íbúð 203
604 Akureyri
109.3 m2
Fjölbýlishús
413
719 þ.kr./m2
78.600.000 kr.
Skoða eignina Seljahlíð 13 G
Bílskúr
Skoða eignina Seljahlíð 13 G
Seljahlíð 13 G
603 Akureyri
134.7 m2
Raðhús
413
578 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Seljahlíð 13
Bílskúr
Skoða eignina Seljahlíð 13
Seljahlíð 13
603 Akureyri
134.7 m2
Raðhús
313
578 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin