Fasteignaleitin
Skráð 26. sept. 2025
Deila eign
Deila

Núpalind 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
114 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.700.000 kr.
Fermetraverð
786.842 kr./m2
Fasteignamat
81.600.000 kr.
Brunabótamat
64.640.000 kr.
Mynd af Ásdís Ósk Valsdóttir
Ásdís Ósk Valsdóttir
Byggt 2000
Þvottahús
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2236922
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
6
Hæðir í húsi
9
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Núpalind 6 er seld og er í fjármögnunarferli.  Mikill áhugi er á 4ra herberbergja íbúðum í 201 Kópavogi sem og í öðrum hverfum miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Erum því með marga kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign.

Á hvað eru sambærilegar eignir að seljast? Smelltu hér til að sjá alla kaupsamninga á sambærilegum eignum 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
Fylgdu mér á TikTok

Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð við Núpalind 6, 201 Kópavogur. Eignin er í góðu lyftuhúsi í þessu vinsæla hverfi á höfuðborgarsvæðinu. Skipt var um lyftu 2021. Einnig fylgir merkt stæði í bílastæðahúsi og á neðra bílastæðinu eru hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Íbúðin er skráð 114 fm og þarf af er geymsla í sameign 5,7 fm.

FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 86.300.000 KR.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA VIDEO AF EIGNINNI 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR

Lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Eldhús og stofa er opið rými að hluta, harðparket á gólfi. Eldhúsinnrétting er á 2 veggjum, með efri og neðri skápum, flísum á milli skápa og borðkrókur við glugga. Stofan er með útgengi á yfirbyggðar suðursvalir. 3 svefnherbergi, öll með harðparketi og skápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, bæði baðkar og sturta, innréttingar á baði. Þvottahús er með góða vinnuaðstöðu, skápa og snúrur. 

Merkt sérbílastæði fylgir íbúðinni, þvottaaðstaða til að þvo bíla í bílageymslunni.

Sameign: Í sameign er sérgeymsla  sem og hjóla- og vagnageymsla.

Núpalind 6 er gífurlega vel staðsett í vinsælli botnlangagötu. Stutt er í Lindaskóla og leikskólana Dal og Núp. Einnig er örstutt í íþróttamiðstöðina Versali þar sem er sundlaug, líkamsræktarstöð og íþróttafélagið Gerpla. Einnig heilsugæslustöð og matvöruverslanir. Helstu útivistarsvæði Kópavogs eru skammt undan, s.s. Guðmundarlundur, Kópavogsdalurinn og Heiðmörk. Verslunarkjarnarnir Lindir og Smáratorg eru einnig í göngufæri. Lindahverfi er mjög fjölskylduvænt og í flestum botnlöngum eru litlir leikvellir.

Samantekt:
þetta er frábær fjölskylduíbúð með stæði í bílageymslu á  frábærum stað í Lindahverfi í Kópavogi. Lindaskóli er staðsettur fyrir ofan Núpalind 6 og leikskólinn Núpur þar á móti og því örstutt að ganga í skólana. Við skólann er stórt leiksvæði, með fótboltavelli og skólahreystibraut. Einnig er grænt svæði með gönguleiðum þar fyrir ofan. Stutt er í alla helstu þjónustu, sundlaug og íþróttaaðstöðu

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/12/201326.550.000 kr.31.900.000 kr.114 m2279.824 kr.
24/11/200826.395.000 kr.32.000.000 kr.114 m2280.701 kr.Nei
02/04/200826.395.000 kr.1.600.000 kr.323.7 m24.942 kr.Nei
25/06/200722.290.000 kr.26.200.000 kr.114 m2229.824 kr.Nei
12/04/200722.290.000 kr.26.900.000 kr.114 m2235.964 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnusmári 5
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 5
Sunnusmári 5
201 Kópavogur
109.7 m2
Fjölbýlishús
312
838 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 5
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 5
Sunnusmári 5
201 Kópavogur
103.8 m2
Fjölbýlishús
312
866 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 3
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 3
Sunnusmári 3
201 Kópavogur
96.4 m2
Fjölbýlishús
312
922 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 3
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 3
Sunnusmári 3
201 Kópavogur
105 m2
Fjölbýlishús
312
875 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin